Afmælisleikirnir halda áfram hjá okkur en við verðum 1 árs þann 5. mars – og gefum YKKUR gjafir allan marsmánuð. Nú ætlum við að gefa þremur heppnum lesendum þessa frábæru nýju bók eftir Ariönnu Huffington aðalritsjóra Huffington Post. En bókin er okkur öllum þörf lesning í því samfélagi sem við búum við í dag.
Ein áhrifamesta kona heimsins
Arianna Huffington er stofnandi og aðalritstjóri Huffington Post og ein áhrifamesta kona heimsins í dag. Henni hefur tekist að gera Huffington Post að einum þekktasta fjölmiðli á alþjóðavísu. Huffington er blaðamaður og hefur skrifað fjölda bóka en Þriðja miðið er langvinsælasta bók hennar. Hún hefur selst í milljónum eintaka, var efst á metsölulista New York Times og hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál.
Í apríl 2007 rankaði Huffington við sér þar sem hún lá í blóðpolli á skrifstofu sinni. Hún hafði örmagnast eftir þrotlausa vinnu við að koma fyrirtæki sínu, Huffington Post, á laggirnar. Í kjölfarið hóf hún gagngera sjálfsskoðun og tók að endurmeta hvað raunverulega felst í velgengni. Hvað peninga og völd varðaði gekk henni vel en hún fór að efast um að það væri skynsamleg skilgreining á velgengni í lífinu.
Huffington boðar nýja lífssýn
Hún skrifaði bók um reynslu sína, Þriðja miðið, sem nú er komin út hjá bókaútgáfunni Sölku. Í henni gerir Huffington aðför að úreltum hugsunarhætti sem mótar samfélag okkar og kynnir ný viðmið á aðgengilegan hátt og tekur fjölda dæma máli sínu til stuðnings. Í bókinni ræðir hún á hreinskilinn hátt eigin hindranir og áskoranir við að samræma frama og fjölskyldulíf.
Huffington boðar nýja lífssýn og byggir hana á vísindalegum niðurstöðum á sviði sálfræði, svefnrannsókna og lýðheilsu, svo eitthvað sé nefnt. Þær sýna óumdeilanlega kosti íhugunar, núvitundar og gjafmildi. Hún talar fyrir byltingu í menningu okkar – hvernig við hugsum, hvernig við vinnum og hvernig við lifum og hvetur okkur til að bregðast við eigi síðar en núna.
Ekki rembast við að klífa metorðastigann, endurskilgreindu frekar velgengni. Heimurinn þarfnast þess nauðsynlega. – Arianna Huffington
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum þrjá heppna út sunnudaginn 6. mars – sem allir fá þessa góðu bók.
Hér er hægt að kaupa bókina.