Það er alltaf gaman að sjá hverju stjörnurnar klæðast við hina árlegu Óskarsverðlaunahátíð.
Hér eru nokkrar stjörnur sem okkur þótti bera af í ár.
Leikkonan Olivia Munn í kjól frá Stella McCartney.
Leikkonan Priyanka Chopra í kjól frá Zuhair Murad.
Fyrirsætan Chrissy Teigen kasólett í guðdómlegum kjól frá Marchesa.
Leikkonan Margot Robbie í æðislegum gullkjól frá Tom Ford.
Leikarinn Jared Leto sker sig alltaf úr, hér klæðist hann Gucci.
Leikarinn Eddie Redmayne er alltaf smart, hér er hann í fötum frá Alexander McQueen.
Leikkonan Kerry Washington alltaf jafn mikill töffari, hér í kjól frá Versace.
Leikkonan Oliva Wilde í kjól frá Valentino.
Leikkonan Charlize Theron glæsileg eins og venjulega í kjól frá Dior.
Söngvarinn Sam Smith í smóking frá Dunhill.