Það er alveg ótrúlegt en það er nánast annar hver maður á Íslandi í dag með skegg. Enda þykir það mjög heitt um þessar mundir.
Flestir skarta þeir alskeggi og sitt sýnist hverjum um þetta „tískutrend“, en flestir eru þó sammála um að þetta fari körlunum okkar vel.
Ekki tekið út með sældinni
Það er þó ekki tekið út með sældinni að eiga mann með mikinn skeggvöxt. Ég þekki það af eigin reynslu. Til dæmis er ekki best í heimi að kyssa þá, sérstaklega ef kossinn er djúpur og langur. Konur finna fyrir sting og kláða og fá oftar en ekki eitt og eitt skegghár upp í sig.
En hvað ef við myndum nú snúa dæminu við. Hvað ef konur væru með skegg en ekki karlar?
Sjáðu viðbrögð tveggja manna þegar þeir sjá konur sínar með skegg og fá það verkefni að kyssa þær.
Þetta er svo mikil snilld 😀
Sigga Lund