Ekki láta aðra segja þér hvað þú getur og hvað þú getur ekki!
Það er og mun alltaf verða til fullt af fólki sem er tilbúið að draga úr okkur – hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þess vegna er svo mikilvægt að standa með sjálfum sér.
Láttu draumana rætast
Ef þig dreymir um að gera eitthvað… láttu þá draumana rætast. Ekki sitja og bíða eftir að þeir banki upp á hjá þér. Því það á aldrei eftir að gerast!
Þú getur laðað til þín góða hluti og öll getum við gert það sem okkur langar til svo framarlega sem líkamleg og andleg heilsa leyfir. En byrjaðu á því að sýna þakklæti fyrir að fá að vera lifandi í þessari skemmtilegu veröld þar sem undrin gerast á hverjum degi.
Hér eru 12 atriði sem geta hjálpað þér að laða til þín það góða og það sem þig dreymir um
1. Vertu þakklát/ur
Þakkaðu fyrir fjölskyldu þína, vini þína, að eiga heimili, að fá að taka þátt í lífinu, að búa í friðsælu landi og svo framvegis. Ekki taka þessu sem sjálfsögðum hlut því margir hafa ekkert af þessu.
2. Vertu jákvæð/ur
Ekki vera sá/sú sem sér alltaf slæmu hliðarnar á öllu. Reyndu að sjá það góða við allar aðstæður – alveg sama hvað gengur á í lífi þínu.
Laðaðu til þín jákvæðar hugsanir því þær fleyta þér svo miklu lengra í lífinu en þær neikvæðu.
3. Ekkert svona
Ekki hugsa hvað ef, eða ég get ekki og vil ekki. Vertu opin/n fyrir tækifærum og öllu nýju.
Það er í raun fátt sem er svo erfitt og óyfirstíganlegt að þú getir það ekki á endanum.
4. Hafðu trú á sjálfri/sjálfum þér
Ef þú hefur ekki trú á sjálfum þér geturðu ekki ætlast til þess að aðrir hafi trú á þér. Stattu með sjálfri/sjálfum þér!
5. Trúðu á drauma þína
Láttu drauma þína rætast – en það er mjög gott að eiga fleiri en einn draum. Allt sem þú þarfnast fyrir draumana er einhvers staðar þarna úti, þú þarft bara að bera þig eftir því. Og stundum þarf líka að taka áhættu.
6. Hlustaðu á hjarta þitt og innsæi
Að hlusta á hjartað er mikilvægt í því að laða til sín það góða. Ekki láta aðra hafa áhrif á þig á vegferð þinni. Hafðu markmið þín skýr.
7. Umvefðu þig rétta fólkinu
Ekki umgangast þá sem sjá það neikvæða í öllu. Umvefðu þig fólki sem er jákvætt og vill þér vel.
8. Ímyndunarafl þitt er öflugt
Hafðu það alveg á hreinu að ímyndunarafl þitt er öflugt og getur gert ótrúlegustu hluti. Ímyndaðu þér að draumar þínir rætist, en það hjálpar þér að vinna enn harðar að þeim.
Þetta snýst allt um að ímynda sér hvað maður vill og gera það síðan að veruleika.
9. Komdu vel fram við aðra
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig. Já, vissulega hefurðu heyrt þetta skrilljón sinnum – en þetta virkar. Ef þú gerir alltaf þitt besta í mannlegum samskiptum mun það hjálpa þér til lengri tíma litið.
10. Ekki gefast upp
Þótt eitthvað takist ekki hjá þér í fyrstu tilraun er um að gera að gefast ekki upp. Það er mun betra og árangursríkara að takast á við mistökin, læra af þeim, bretta upp ermar og halda áfram.
11. Það má alltaf bæta sig
Enginn er fullkominn og það má alltaf bæta sig og gera betur. Ef það er t.d. eitthvað sem þig langar mikið til að geta gert þá er bara að drífa sig í að læra það og æfa sig svo.
Hvort sem það er að læra að syngja eða að verða betri manneskja þá skapar æfingin meistarann
12. Sýndu þolinmæði
Þolinmæði er dyggð og góðir hlutir gerast hægt. Ekki alltaf ætlast til þess að hlutirnir gerist strax – leyfðu þessu öllu að hafa sinn gang. Og hugsaðu jákvætt á meðan þú lætur þetta gerast.
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com