Ef þú ert að velta því fyrir þér hvort maðurinn sem þú ert að hitta, eða átt í sambandi við, sé tilbúinn til þess að taka sambandið upp á næsta stig og festa ráð sitt með þér skaltu hafa þetta í huga.
Hættu að velta hlutunum fyrir þér og farðu að taka eftir því hvernig hann hegðar sér. Það segir meira en mörg orð.
Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, en ef þú kannast við eitthvað af eftirfarandi fimm atriðum í fari hans þá getur þú verið viss um að honum er alvara – og hann er virkilega að íhuga hvort framtíðin felist ekki í því að eyða henni með þér.
Hér eru fimm merki þess að hann sé tilbúinn að festa ráð sitt
1. Þið eyðið jafnmiklum tíma heima hjá þér og honum
Eftir því sem pör verða nánari, eykst þörf þeirra til að blanda þáttum í lífi sínu saman. Að vera sitt á hvað á heimili hvors annars er mikilvægt, þar sem það sýnir merki um áhuga, þrá og vilja til að leggja eitthvað á sig á þeirri vegferð að vinna ástir hvors annars.
2. Þegar þú þarft að breyta áætlunum, virðir hann það og er sveigjanlegur
Það kemur alltaf fyrir að við þurfum að breyta áætlum okkar með stuttum fyrirvara. Þegar hann skilur það, virðir og er sveigjanlegur er hann að sýna að hann getur sett þínar þarfir ofar sínum. Þetta er merki um örlæti og umburðarlyndi – eiginleika sem flestir leita eftir í fari lífsförunauta sinna.
3. Hann fer að taka tíma með þér fram yfir sín áhugamál.
Segjum sem svo að þú sért í fríi eitt kvöldið og það vilji svo til að einmitt það kvöld sé liðið hans í enska boltanum að spila mikilvægan leik, en hann ákveður að eyða tímanum með þér í staðinn fyrir að horfa! Þegar hann fer að taka tíma með þér fram yfir allt sem hann elskar, er það merki um að hann sé tilbúinn til að taka næst skref í sambandinu!
Mundu samt að þetta kemur ekki til með að vara að eilífu, en þetta er frábært merki til að byrja með!
4. Hann gefur sér tíma til að kynnast þér
Þegar fólki fer að líka við hvort annað sem manneskjur, lærir það að fyrirgefa allskonar galla í fari hvors annars. Stundum sleppir fólk nauðsynlegum skrefum í ástarsambandi og fer beint af hrifnings-stiginu yfir í kynlífið og gefur sér ekki tíma til að kynnast hvort öðru. Að sofa hjá of snemma getur eyðilagt þrá mannsins að langa til að kynnast þér betur! Að kynnast hvort öðru vel og æða ekki beint í bólið er grunnurinn að því að byggja upp heilbrigt og farsælt samband.
5. Gildi ykkar, markmið og dagskrá er svipuð
Deilið þið í rauninni svipuðum markmiðum í lífinu? Þegar karl og kona deila markmiðum fyrir framtíðina, hvort sem það er að stofna fjölskyldu, byggja upp frama eða fyrirtæki, eru þau mun afslappaðri og tilbúnari til að styðja hvort annað.