Að taka sér þennan lista til eftirbreytni og hætta þessum 15 atriðum mun klárlega veita þér ómælda hamingju.
Þetta eru hlutir sem vilja gjarnan loða við okkur og okkur finnst erfitt að sleppa. Samt valda þeir okkur sársauka, stressi og þjáningu. En nú er kominn tími til að taka málin í sínar hendur.
Taktu nýja árið með trompi og losaðu þig við það sem hindrar hamingju þína og vertu óhrædd/ur við breytingar.
Hér eru 15 atriði sem þú þarft að hætta til að finna hina raunverulegu hamingju
1. Hættu að finnast þú alltaf þurfa að hafa á réttu að standa
Mörg okkar vilja hafa rétt fyrir sér öllum stundum og þola ekki einu sinni þá tilhugsun að hafa rangt fyrir sér. Jafnvel þó að með því séum við að fórna frábærum samböndum eða að valda álagi og sársauka fyrir okkur sjálf og aðra. Það er einfaldlega ekki þess virði.
Næst þegar þú finnur þörfina fyrir að rífast um það hver hafi nú rétt eða rangt fyrir sér skaltu velta fyrir þér þessari spurningu:„Hvort er mikilvægara – að hafa rétt fyrir sér eða að sýna velvilja?“ (Wayne Dyer). Mun það að þú hafir rétt fyrir þér raunverulega breyta einhverju eða ertu bara með svona stórt egó?
2. Hættu að vilja stöðugt sitja við stjórnvölinn
Ekki reyna að stjórna öllu og öllum í kringum þig – kringumstæðum, atburðum eða fólki. Hvort sem um er að ræða ástvini, vinnufélaga eða ókunnuga sem þú hittir á förnum vegi, leyfðu þeim einfaldlega að vera þau sjálf. Leyfðu öllu og öllum að vera þau/það sem það er og þér mun líða miklu betur.
„Með því að leyfa því að„vera“, gerist það. Heimurinn er unninn með því að leyfa honum að„vera“. Ef þú reynir og reynir verður heimurinn óyfirstíganlegur.“ (Lao Tzu)
3. Hættu að ásaka
Hættu að kenna öðrum um það sem þú hefur eða hefur ekki, um það sem þú upplifir eða upplifir ekki. Hættu að sóa orku þinni í ásakanir og taktu ábyrgð á sjálfri/sjálfum þér.
4. Hættu að tala þig inn í ósigur
Vá! Ef við bara vissum hve margir eru að skaða sig vegna hugarfars sem er neikvætt. Og sem síendurtekið festast í hugsunarhætti sem leiðir til ósigurs. Ekki trúa öllu sem hugurinn segir þér, sérstaklega ef það er eitthvað sem rífur þig niður. Þú ert miklu betri en það.
„Hugurinn er eyðandi afl ef hann er notaður á rangan hátt, en afbragðs tæki ef hann er notaður rétt.“ (Eckhart Tolle)
5. Hættu að takmarka sjálfa/n þig
Ekki láta það sem þú heldur að þú getir eða getir ekki og allt það sem þú heldur að sé þér mögulegt eða ómögulegt takmarka þig. Tíminn er núna til að hefja sig til flugs og yfirgefa þann stað þar sem hugsanaháttur þinn takmarkar þig.
6. Hættu að kvarta
Ekki láta eftir þörfinni til að kvarta yfir þeim fjölmörgu hlutum, fólki, aðstæðum eða atburðum sem gera þig óhamingjusama/n, leiða/n og þunglynda/n. Enginn hefur afl til að gera þig óhamingjusama/n, engar kringumstæður geta gert þig leiða/n eða vansæla/n nema þú sjálf/ur leyfir það.
Það eru ekki kringumstæðurnar sjálfar sem vekja upp þessar tilfinningar með þér heldur það hvernig þú höndlar þær. Þú skalt aldrei vanmeta mátt jákvæðs hugarfars.
7. Hættu að gagnrýna
Ekki láta undan þeirri þörf að gagnrýna hluti, atburði eða fólk sem er öðruvísi en þú. Við erum jú öll mismunandi en þó svo lík.
Öll viljum við vera hamingjusöm, öll viljum við elska og vera elskuð og viljum gjarnan að aðrir sýni okkur skilning. Öll viljum við eitthvað og öll óskum við einhvers.
8. Hættu að reyna að láta öllum líka vel við þig
Ekki reyna að vera önnur/annar en þú ert í þeim tilgangi að öðrum líki vel við þig. Það gerist ekki þannig. Á þeirri stundu sem þú hættir að reyna að vera einhver sem þú ert ekki – þegar þú tekur niður allar grímurnar, þegar þú samþykkir og umfaðmar þá/þann sem þú raunverulega ert þá fyrst fer fólk ósjálfrátt að laðast að þér og án erfiðis.
9. Hættu að neita að breytast
Breytingar eru oftast til batnaðar. Breytingar hjálpa þér að færa þig frá einum stað til annars. Þær hjálpa þér að bæta líf þitt og þeirra sem eru í kringum þig. Ekki standa gegn breytingum og þar með tækifærinu til aukinnar hamingju.
„Stattu ekki gegn hamingju þinni og umheimurinn mun opna fyrir þig dyr þar sem áður voru eintómir veggir.“ (Joseph Campbell)
10. Hættu að draga í dilka
Ekki dæma og draga í dilka það fólk og kringumstæður sem þú skilur ekki með því að kalla það skrýtið eða öðruvísi. Reyndu að opna hugann stöðugt meira. Hugurinn virkar best ef þú heldur honum opnum.
„Hæsta stig vanþekkingar er þegar þú hafnar einhverju sem þú veist ekkert um.“ (Wayne Dyer)
11. Hættu að óttast
Ótti er aðeins tálmynd. Tálmyndir eru ekki raunverulegar – þú skapar þær. Þetta er allt í hausnum á þér. Leiðréttu það sem er innra með þér og það ytra leiðréttist af sjálfu sér.
„Það eina sem við þurfum að óttast er óttinn sjálfur.“ (Franklin D. Rosevelt)
12. Hættu að afsaka þig
Ef það er eitthvað sem þú ættir að „segja upp“ í lífi þínu eru það afsakanir þínar. Þú þarft ekki lengur á þeim að halda.
Með því að afsaka þig ertu um leið að takmarka þig. Í stað þess að vaxa og að vinna í því að bæta sjálfa/n þig og líf þitt festistu í viðjum lyga og afsakana. Afsakana sem eru í 99% tilfella ekki sannar eða raunverulegar.
13. Hættu að lifa í fortíðinni
Þetta getur verið erfitt. Sérstaklega þegar fortíðin lítur svo miklu betur út en nútíðin og framtíðin virkar kannski skelfileg. Eitt verður þú þó að taka með í reikninginn en það er sú staðreynd að núið er það eina sem þú hefur og munt hafa.
Fortíðin sem þú þráir, fortíðin sem þig dreymir um er andartak, liðið „nú“ sem þú leist fram hjá á sínum tíma. Hættu að blekkja sjálfa/n þig. Vertu í núinu í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og njóttu lífsins.
Tilvera okkar er jú ferðalag en ekki endanlegur áfangastaður. Hafðu sterka sýn á framtíðina, undirbúðu þig en lifðu alltaf í núinu.
14. Hættu að vera háð/ur
Þetta er eitthvað sem fyrir flest okkar er erfitt að horfast í augu við. Það er það kannski núna en ekkert er ómögulegt. Þú verður betri og betri í þessu með tíma og æfingu.
Á þeirri stundu sem þú losar um öll bönd og strengi til allra hluta verður þú friðsæl/l, þolinmóð/ur, kærleiksrík/ur og í miklu jafnvægi. Það þýðir samt ekki að þú gefir upp á bátinn kærleika þinn til alls, því kærleikur og það að vera háður eru tveir ólíkir hlutir. Það að vera háður er sprottið af ótta. Kærleikur er hins vegar hreinn, góður og óeigingjarn. Ótti býr ekki í kærleika og þess vegna getur kærleikurinn og það að vera háður ekki farið saman.
Með því að sleppa takinu kemstu á þann stað að geta skilið alla hluti án áreynslu. Og það er staður sem orð fá ekki lýst.
15. Hættu að lifa eftir væntingum annarra
Allt of margir lifa lífi sem er ekki þeirra að lifa. Þeir lifa samkvæmt því sem aðrir ætlast til af þeim. Eins og eftir því hvað foreldrunum finnst, því sem vinunum líkar best, óvinum, kennurum, ríkisstjórnum eða fjölmiðlum finnst réttast fyrir þá.
Þeir hlusta ekki á sína innri rödd, sína innri köllun. Þeir eru svo uppteknir við að lifa eftir væntingum annarra að þeir missa stjórn á eigin lífi. Þeir gleyma hvað það er sem gerir þá hamingjusama, hvað þeir vilja, hvers þeir þarfnast og að lokum gleyma þeir hverjir þeir raunverulega eru.
Þú átt eitt líf – það líf sem þú lifir nákvæmlega núna. Þú verður að lifa því, eiga það og aldrei láta álit og skoðanir annarra halda þér frá þeim vegi sem þú vilt helst ganga.
Pistillinn birtist á www.purposefairy.com