Maður hefði haldið að það væri ekki mikið mál að skella á sig varalit – og í sjálfu sér er það kannski ekkert flókið.
En ef þú vilt hins vegar að varaliturinn endist lengi og njóti sín sem best á vörunum er eitt og annað sem þarf að hafa í huga.
Gott að kunna
Nú fyrir hátíðir þar sem mikið er um veislur, matarboð, tónleika og annað slíkt skella flestar konur á sig varalit. Og þá er nú aldeilis gott að kunna aðferð sem lætur hann endast á vörunum allt kvöldið eða allan daginn.
Í þessu myndbandi er farið yfir það í sjö auðveldum skrefum hvernig þú mótar varirnar og notar varalitinn svo hann endist lengur og til að ná fram hinum fullkomnu vörum.
Þá er bara að fara að æfa sig!
Sjáðu þetta hér í myndbandinu