Fyrsti klukkutími dagsins eftir að þú vaknar er oft sagður sá mikilvægasti. Það er einfaldlega vegna þess að hann setur tóninn fyrir restina af deginum.
Allir eiga sína morgunrútínu hvort sem þeir gera sér grein fyrir því eða ekki, og eru sumar venjur betri en aðrar til að undirbúa hugann og líkamann fyrir komandi dag.
Gott að hafa ákveðnar morgunvenjur og siði
Hver kannast ekki við að grípa í símann og renna yfir alla félagsmiðlana og athuga pósthólfið sitt jafnvel áður en farið er framúr? Það er víst ekki besta leiðin til að byrja daginn samkvæmt Íslandsvininum og alþjóðlega fyrirlesaranum Brian Tracy.
Brian hefur unnið með þúsundum einstaklinga sem hafa náð gífurlegum árangri og nýtur velgengni bæði í lífi og starfi. Hann segir allt þetta fólk eiga eitt sameiginlegt. Þau hafi ákveðnar morgunvenjur og siði. Og hann telur að ef þú tileinkar þér þesssa þrjá eftirfarandi hluti muntu eiga æðislegan dag, alla daga.
Lestu eitthvað uppbyggilegt
Einn góður siður sem þú getur tileinkað þér á hverjum morgni er að fara á fætur og lesa í 30 – 60 mínútur eitthvað jákvætt, gagnlegt og upplífgandi. Eitthvað sem veitir þér innblástur. Ef þú gerir það í staðinn fyrir að lesa morgunblöðin eða vafra á netinu setur þú tóninn fyrir daginn.
Þú finnur það um leið og þú byrjar að tileinka þér þetta að þú verður rólegri og afkastameiri í gegnum daginn, meira skapandi og á allan hátt betur undirbúin/n fyrir það sem er framundan.
Fáðu þér góðan morgunmat
Önnur morgunvenja sem þú ættir að tileinka þér er að borða hollan og góðan mat. Forðastu feitan mat á morgnanna sem dregur þig niður og gerir þig þreytta/n. Borðaðu þess í stað meira af ávöxtum og grænmeti og drekktu vel af vatni og sjáðu til þess að þú fáir próteinið þitt með morgunmatnum.
Staðgóður og hollur morgunmatur gefur þér réttu orkuna og undirbýr þig fyrir daginn sem er framundan.
Hafðu gott skipulag
Til að afkasta meiru yfir daginn er gott að plana hann fyrirfram. Best af öllu er að skipuleggja daginn kvöldið áður og nota A, B, C, D- aðferðina til að forgangsraða verkefnunum. Það er ótrúlegt hvað þú sefur betur og vaknar jákvæðari þegar þú veist hvað þú ert að fara að gera og í hvaða röð. Notaðu svo t.d. tímann á meðan þú borðar morgunmatinn til að fara yfir skipulag dagsins.
Þá vitum við hvaða morgunvenjur fólk getur tileinkað sér til að undirbúa daginn og ná sem bestum árangri. Hver og einn verður svo að finna sinn farveg til að byrja hvern dag af krafti.
En hvaða morgunvenjur hefur Brian sjálfur tileinkað sér? Sjáðu myndbandið.