Að sjá eftir því sem maður aldrei gerði

Þorgrímur ÞráinssonStundum hugsa ég of mikið. Og líklega hugsa flestir of mikið.

Hugsanir geta hrært of mikið upp í okkur en fáum við nokkuð við það ráðið?

Er ég að gera það sem mig langar mest til?

Það er erfitt að hafa stjórn á hugsunum, nema vera með meistaragráðu í hugleiðslu. Ætti maður kannski að reyna að bægja öllum hugsunum frá og lifa eingöngu í augnablikinu, hugsunarlaust? Flæða, verða eitt með núinu. Eflaust væri það æskilegast en fyrir flesta er það of krefjandi. Alls kyns hugsanir poppa upp við ólíklegustu aðstæður, burtséð frá því hvernig manni líður hverju sinni. Hver er tilgangur lífsins? Til hvers allt þetta brölt ef hver dagur er eins og deja vú? Er ég í réttu vinnunni, að umgangast rétta fólkið, gera virkilega það sem mig langar mest að gera? Til hvers hjónaband með krefjandi börnum þótt þau séu líklega mestu kennarar lífsins? Er frelsið best í heimi? Hvað er frelsi og hvernig færi ég með það ef ég væri engum háður?

Tilgangslaust líf

Eflaust má leiða að því líkur að lífið sé að mestu leyti tilgangslaust. Við erum föst í viðjum vanans, með miklar ábyrgðir, skyldur og sjáum oft ekki út úr augum fyrir verkefnum eða skuldum. Erum við þrælar efnishyggjunnar, höfum við látið aðra afvegaleiða okkur, af hverju erum við ekki nóg sterk til að taka sjálfstæðar ákvarðanir? Tilgangslaust líf? Eflaust ögrandi og ósanngjörn fullyrðing en hvað vill maður virkilega fá út úr lífinu? Sömu athafnir dags daglega? Sitja fastur í búrinu en langa að brjóta út en þora ekki? Hverjum er maður að þóknast?


Því geta fylgt miklir ókostir að hugsa of mikið. En líka kostir því hugsanirnar ýta manni af stað til nýrra athafna, sigra, eða ósigra sem er líklega mest þroskandi. Er hugsanlega mesta syndin að sitja fastur í sama hjólfarinu áratugum saman og dreyma um annað líf en gera ekkert í því? Fyrir hvern er maður að fórna sér; makann, börnin, stór-fjölskylduna, siðareglur kirkjunnar, hinar almennu reglur og hefðir siðmenntaðs þjóðfélags sem mörgum þykja úreltar?

Hugsanir geta þvælst of mikið fyrir manni

Það að gleyma sér í augnablikinu, ástríðunni er ein mesta gæfa lífsins. Að vera á þeim stað þar sem maður virkilega vill vera. Þá mætti draga þá ályktun að það sé synd og skömm að vinna ekki við það sem veitir manni mestu fullnægju. Og eflaust er það enn meiri synd að verða gamall og sjá eftir því sem maður gerði aldrei.

Cogito, ergo sum, sagði franski heimspekingurinn René Descartes sem var uppi á 16. öld. Það er latína og þýðir „Ég hugsa, þess vegna er ég til“. Á þessu byggði hann alla sína heimspeki. Síðustu orð Descartes voru: „Jæja sál mín, tími til að fara.“
Hugsanir eru til alls fyrst en að láta þær þvælast of mikið fyrir manni getur gjörsamlega ruglað mann í ríminu.

Þorgrímur Þráinsson

 

Pistillinn birtist fyrst á Facebook-síðu Þorgríms Verum ástfangin af lífinu.

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Melissa léttist um 23 kíló á fimm vikum og án þess að fara í ræktina

Okkur finnst leikkonan Melissa McCarthy vera ein af þessum skemmtilegu og...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Melissa léttist um 23 kíló á fimm vikum og án þess að fara í ræktina

Okkur finnst leikkonan Melissa McCarthy vera ein af þessum skemmtilegu og...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...