Kókosolía þykir hafa sannað gildi sitt og hefur notið vinsælda undanfarin ár. En í hitabeltislöndum hefur þessi náttúrulega olía verið notuð til margra alda.
Olían er til margra hluta nytsamleg og þá bæði útvortis sem innvortis.
Hér eru fjórar leiðir til að nota kókosolíu
Notaðu hana á húðina
Kókosolían veitir húðinni góðan raka og næringu þar sem hún inniheldur efni sem hjálpa til við að endurnæra og bæta húðina.
Olían hefur bakteríudrepandi eiginleika og virkar auk þess vel á bólur. Þá koma andoxunarefni hennar að miklu gagni gegn þeim skemmdum sem sólin og geislar hennar valda.
Notaðu hana sem djúpnæringu við hárþvottinn
Kókosolía er frábær sem meðferð við þurrum hársverði. Hún hjálpar hárinu að viðhalda raka sínum og styrkir það.
Olían virkar vel sem djúpnæring fyrir hárið – en þá nuddar þú smá kókosolíu í hársvörðinn og hárið, og leyfir henni að vera í hárinu í 5 mínútur. Síðan þværðu hárið eins og venjulega.
Til að koma reglu á meltinguna
Hvort sem vægar meltingartruflanir þjaka þig annað slagið eða ef þú þjáist af langvarandi meltingarvandamálum þá getur neysla kókosolíu hjálpað. Þá er einnig talið að hún geti bætt ástand þeirra sem þjást af candida sveppasýkingu. Og þess utan geta víst fitusýrurnar sem hún inniheldur hjálpað líkamanum að vinna næringarefni betur úr fæðunni.
Notaðu hana við eldamennskuna
Kókosolía hentar vel til matargerðar því hún er stöðug og þolir mikinn hita. Prófaðu að nota hana við steikingu á kjöti, fiski og grænmeti – og við baksturinn í stað annarar olíu.