Hér eru átta stórgóð förðunarráð fyrir húð sem er byrjuð að eldast.
Litaraft húðarinnar breytist með aldrinum og fínar línur og hrukkur fara að sjást. Því er ekki úr vegi að draga nýjar áherslur og finna lausnir sem henta þessum breytingum.
Átta frábær ráð
1. Næring
Mikilvægt er að næra húðina og þá sérstaklega þegar við eldumst. Í hvert skipti sem þú hreinsar húðina berðu þá gott nærandi krem á hana strax á eftir. Ef þú ætlar síðan að farða húðina skaltu bíða með það í smá stund svo húðin nái að sjúga í sig rakann úr kreminu.
2. Húðliturinn
Ein af einfaldari lausnum fyrir unglegra útlit er hlýr húðlitur en húðin missir gjarnan þann eiginlega með hærri aldri. En úr því má bæta með því að nota meik eða dagkrem sem er hálf gult á litinn – við erum samt ekki að tala um sinnepsgult hér heldur miklu mildari lit.
3. Hyljari
Notaðu fljótandi hyljara á bauga og krákufæturna kringum augun. Hyljarinn dregur úr fínum línum. Ef notaður er hyljari sem er stifti sest það frekar í línurnar og gerir þær enn sýnilegri.
4. Förðunarsvampur
Prófaðu að nota lítinn förðunarsvamp þegar þú setur farða á húðina. Bleyttu svampinn örlítið og kreistu hann til að ná mesta vatninu úr honum. Settu síðan örlítinn farða á hann. Vatnið á svampinum virkar eins og þynningarefni sem gerir það að verkum að farðinn verður ekki eins þykkur.
Þykkur og of hyljandi farði hentar eldri húð ekki jafn vel. Svona hálfgegnsæ förðun gefur húðinni frekar þann ljóma sem einkennir unga húð.
5. Þurrt eða kremkennt
Eins og áður sagði þarfnast húðin mikils raka og góðrar næringar. Þess vegna hentar ekki að nota kökumeik og mikið púður. Leitastu við að velja litað dagkrem, fljótandi meik, gel og fleira í þeim dúr. En losaðu þig við allt sem er í þurru púðri.
6. Augabrúnir
Farðu varlega þegar þú plokkar augabrýrnar. Taktu aðeins þau hár sem vaxa út fyrir brýrnar en leitaðu síðan til fagaðila til að móta þær fallega. Augabrýr sem eru illa eða einkennilega mótaðar eru afar áberandi og geta skemmt heildarútlitið.
7. Augnskuggi
Þegar þú setur á þig augnskugga er mikilvægt að nota grunn undir eða svo kallaðan „primer“. Fínar línur myndast á augnlokunum með aldrinum og augnskugginn sest í þær línur og ýkir þær. Grunnurinn þekur hins vegar línurnar áður en skugginn er settur á.
8. Áhersla á augnsvæðið
Leggðu áherslu á augnsvæðið. Ef þú notar t.d. alltaf svartan augnblýant á augun ættirðu að prófa að nota brúnan fljótandi blýant. Þetta getur breytt heilmiklu og gefið þér unglegra útlit. Brettu líka upp á augnhárin en það opnar augun enn frekar. En það er einmitt augnsvæðið sem getur gert útlitið enn frísklegra og unglegra.