Ekki hentar öllum konum sama klippingin og sama greiðslan. Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar hárið er klippt og eitt af því er andlitsfall viðkomandi.
Það fer t.d. mikið eftir andlitsfallinu hvaða hársídd hentar hverri og einni – og einnig hvort eða hvernig taka á hárið upp.
Hér eru hinar dæmigerðu sex tegundir andlitsfalla teknar fyrir og hvað hentar hverju og einu þeirra.
Hvað hentar þínu andlitsfalli best?
Kringlótt andlit
Þetta andlitsfall klæðir best að hafa millisítt hár og sídd sem fellur undir hökuna eins og t.d. hinn klassíski „bob“ og síðari útgáfan af „bob“. Sítt hár kemur líka vel út og þá er klæðilegt að hafa styttur í hárinu.
Eigi að taka hárið upp er sú greiðsla sem hentar kringlóttu andliti best gamla góða taglið.
Sporöskjulaga andlitsfall
Konur með þetta andlitsfall geta leikið sér með ólíka stíla og hársíddir. En sítt hár klæðir þetta andlitsfall engu að síður best.
Þegar hárið er tekið upp og greitt henta snúðar og fléttur þessu andliti best.
Ferkantað andlitsfall
Hér ætti að forðast millisítt hár þar sem það gerir ekkert annað en að láta andlitið líta út fyrir að breiðara en það er. Þetta andlitsfall klæðir best að hafa mjög sítt hár eða þá alveg stutt.
Sú greiðsla sem hentar best er slegið og slétt hár.
Hjartalaga andlitsfall
Konur með þetta andlitsfall klæðir best að hafa sítt hár. Og forðast ætti stutt hár þar sem það lætur efri hluta andlitsins virka breiðari.
Tilvaldar greiðslur fyrir þetta andlitsfall eru krullur og liðir
Þríhyrnt andlitsfall
Þetta andlitsfall er breiðara að ofan en neðan og stutt hár klæðir það vel. Styttur í síðu hári henta líka og þá er gott að hafa síðan hliðartopp, klippingin hennar Rachel úr Friends-þáttunum kemur t.d. vel út. Ef þú kýst síðara hár er gott að miða við að hárið nái niður fyrir kjálkalínuna.
Ef hárið er tekið í tagl gættu þess þá að leyfa einhverju af hárinu að falla lausu meðfram andlitinu til að mýkja kjálkalínuna.
Langt andlit
Besta klippingin fyrir þetta andlitsfall er hár sem klippt er í axlarsídd. Markmiðið hjá konum með langt andlit ætti að vera að fá þykkt í hárið, þ.e. að hárið virkið meira. Góð leið til þess er með liðum og krullum.
Að klippa á sig topp er líka góð leið til að láta andlitið virka styttra, þá skiptir ekki öllu máli hvort það er þvertoppur eða síður hliðartoppur. „Bob-inn“ hentar þessu andliti líka og þá sérstaklega síðari útgáfan af honum. En sítt og slétt hár ætti að forðast.