Þegar sólin skín og mörkin milli dags og nætur er orðin lítil sem engin er alveg nauðsynlegt að eiga góð og flott sólgleraugu – og helst fleiri en ein.
Það er líka oft þannig hér á landi að þótt sólin skíni ekki er birtan það mikil að hún kallar á sólgleraugu.
Breytingar milli ára
Sólgleraugnatískan tekur breytingum líkt og annað sem fylgir tískunni. Í ár er eru heitustu gleraugun stór, kringlótt – og litað gler eða speglagler er vinsælt.
Það er úr nógu að velja og allir ættu að geta fundið þá umgjörð sem þeim hentar. Síðan er auðvitað svo gaman að eiga til skiptanna því flott sólgleraugu setja gjarnan punktið yfir i-ið.
Hér má sjá brot af sólgleraugnatískunni sumarið 2016
Retró-stíllinn er áberandi
Þessi eru frá Victoriu Beckham
Þessi eru frá Christian Dior
Klassísk Ray-Ban með bláu gleri
Kate Hudson