Þótt hún Giorgia sé ekki nema 10 ára gömul tókst henni að heilla dómarana í Britain´s Got Talent, og allan salinn, upp úr skónum.
Giorgia er ótrúlega hæfileikarík en hún samdi lag og texta sem fjallar um það hvað sumt fullorðið fólk og foreldar hlusti ekki börnin sín og láti þau einfaldlega bara dingla. Hún segist þó ekki byggja textann á eigin reynslu.
Að launum fyrir frábæra frammistöðu hlaut Giorgia gullna hnappinn og flýgur því inn í undanúrslit.