Hver þekkir það ekki að hafa einhvern tímann farið hjá sér eða skammast sín aðeins fyrir foreldra sína?
Og núna er því kannski þannig farið að börnin þín fara hjá sér vegna einhvers sem þú gerir!
Þessi nýja franska jólaauglýsing sýnir þetta einmitt á svo snilldarlegan hátt að maður hreinlega fær tár í augun… tár vegna þess að hún er svo vel gerð og maður getur samsamað sig við hana.
Auglýsingin segir sögu feðga í gegnum árin, allt frá litlum dreng til fullorðins manns. Hún hefst á því að faðirinn setur snældu í tækið og byrjar að dansa á sinn hátt – algjörlega á sinn hátt.
Hér er klárlega á ferðinni eitthvað sem flestir ef ekki allir foreldrar þekkja.
Þetta er besta jólaauglýsingin sem við höfum séð í ár!