Einhverra hluta vegna bakar maður ekki oft rúllutertur. Sem er í sjálfu sér svolítið skrýtið því þær eru bæði einstaklega góðar sem og afskaplega fljótgerðar.
Bananar og súkkulaði eru skotheld blanda – og því er óhætt að segja að þessi rúlluterta klikki ekki.
Hér er uppskrift sem hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir með okkur.
Það sem þarf
4 egg
160 g sykur
65 g kartöflumjöl
2 tsk lyftiduft
3 msk kakó
4 bananar
4 dl rjómi
20 g súkkulaði, saxað eða rifið gróft
sítrónusafi til að kreista yfir bananana
Aðferð
Hitið ofninn í 250°C eða 220°C á blástur.
Þeytið egg og sykur mjög vel saman – eða þar til það er létt og loftmikið.
Blandið kartöflumjöli, lyftidufti og kakó saman og sigtið út í eggjamassann, blandið varlega saman með sleikju.
Setjið bökunarpappír í ofnskúffu, smyrjið pappírinn með matarolíu.
Hellið deiginu í formið og bakið kökuna í miðjum ofni í 4 -5 mín.
Setjið örk af bökunarpappír á borðið, stráið svolitlum sykri á hann.
Hvolfið kökunni á pappírinn, látið kólna smástund og flettið pappírnum síðan varlega af. Ef það reynist erfitt að ná pappírnum af er ráð að setja rakt viskustykki ofan á smástund og fletta kökunni af pappírnum með hníf.
Látið kökuna kólna.
Þeytið rjómann, takið smávegis frá til að skreyta með.
Stappið 3 banana og blandið saman við rjómann sem fer í fyllinguna. Smyrjið bananarjómanum á kökuna og rúllið henni upp.
Sprautið eða setjið rjóma ofan á rúlluna með skeið og skreytið með banananasneiðum. Kreistið sítrónusafa yfir bananana svo þeir verði ekki brúnir. Stráið súkkulaði ofan á.
Njótið!