Hvernig hljómar að skella í lasagna en sleppa hakkinu og nota grænmeti í staðinn?
Hér er ljúffeng uppskrift að grænmetislasagna – uppskriftin miðast við 8 til 10 manns og er því tilvalið að hita réttinn upp daginn eftir.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
Tómatsósan
- 2 gulir laukar
- 1/2 rautt chili
- 1 dl ólífuolía
- 4 hvítlauksrif
- 2 dósir hakkaðir tómatar
- 2 dl vatn
- 1,5 grænmetisteningur
- 20 snúningar á piparkvörn
- 1-2 msk sykur
Aðferð
Afhýðið og fínhakkið laukinn og fínhakkið chilíið (hafið fræin með).
Hitið olíuna í þykkbotna potti og steikið lauk, chilí og hvítlauk í nokkrar mínútur.
Laukurinn og hvítlaukurinn eiga að mýkjast án þess að brúnast.
Bætið hökkuðum tómötum, vatni og grænmetisteningum út í og látið sjóða saman við lágan eins lengi og tími gefst.
Kryddið með pipar og sykri.
Ostasósa
- 75 g smjör
- 1 ½ dl hveiti
- 1 líter mjólk
- 1 tsk salt
- ½ – 1 tsk hvítur pipar
- 1/8 tsk múskat
- 1/8 tsk cayenne pipar
- 180 g krydd havarti ostur – rifinn
Aðferð
Bræðið smjörið í þykkbotna potti.
Hrærið hveitinu saman við smjörið og hrærið síðan mjólkinni smátt og smátt saman við. Passið að hrærið allan tímann í pottinum svo brenni ekki við.
Hrærið kryddi út í og látíð sjóða við vægan hita í nokkrar mínútur.
Takið pottinn af hitanum og hrærið rifnum ostinum út í.
Spínatfylling
- 2 gulir laukar
- 500 g spínat
- 50 g smjör
- ¼ tsk salt
- 6 snúningar á piparkvörn
- ½ tsk múskat
Afhýðið laukinn og skerið í hálfmána.
Bræðið smjör á pönnu og steikið laukinn við vægan hita þar til hann er mjúkur.
Kryddið.
Bætið spínatinu á pönnuna og steikið áfram þar til spínatið er orðið mjúkt.
- 2 kúrbítar
- 250 g mozzarella
- 100 g parmesan
- 500 g ferskar lasagnaplötur (eða þurrkaðar)
Skerið kúrbítinn á lengdina með ostaskera í örþunnar sneiðar. Rífið mozzarellaostinn og fínrífið parmesanostinn.
Aðferð
Smyrjið botn á stóru eldföstu móti með smá ólífuolíu.
Setjið ¼ af ostasósu í botninn, leggið lasagnaplötur yfir, setjið helminginn af tómatsósunni yfir, síðan allan kúrbítinn (leggið sneiðarnar yfir hvora aðra), helminginn af mozzarellaostinum og helminginn af parmesanostinum, kryddið með svörtum pipar, setjið ¼ af ostasósunni yfir, lasagnaplötur, alla spínatblönduna, seinni helminginn af parmesanostinum, ¼ af ostasósunni, kryddið með svörtum pipar, lasagnaplötur, það sem eftir er af tómatsósunni og það sem eftir er af ostasósunni.
Setjið í 175° heitann ofn í 20 mínútur, setjið þá það sem eftir var af mozzarellaostinum yfir og bakið áfram þar til osturinn er bráðnaður.