Þessi steikti fiskur er meiriháttar góður og alls ekki flókinn í framkvæmd.
Þorskur eða ýsa í parmesanraspi sem gott er að bera fram með ofnbökuðum eða soðnum kartöflum, hrásalati og hvítlaukssósu.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- 600 – 700 gr beinhreinsuð og roðlaus ýsu- eða þorskflök
- 1 ½ bolli rifinn parmesanost
- 1 bolli brauðrasp – best er að nota til helminga venjulegan brauðrasp og rasp úr grófu brauði (ristið brauðið, látið kólna og myljið síðan í matvinnsluvél)
- 2 egg
- mjólk
- hveiti
- sítrónupipar
Aðferð
Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita.
Pískið egg og smá mjólk saman.
Blandið saman 1 bolla af parmesan og brauðraspinu.
Veltið fiskbitunum upp úr hveitinu, síðan eggjablöndunni og að lokum parmesanraspinu.
Hitið olíu og smjör saman á pönnu (passið að hafa hana ekki of heita) og steikið fiskinn á hvorri hlið þar til hann er orðinn fallegur að lit.
Kryddið með sítrónupipar og leggið í eldfast mót. Stráið afgangnum af parmesanostinum yfir og setjið í 170° heitan ofn í nokkrar mínútur eða þar til að osturinn byrjar að bráðna.
Takið út og njótið!