Stjörnuspáin fyrir janúarmánuð – Nautið, Tvíburinn, Krabbinn og Ljónið

Á nýju ári er ávallt forvitnilegt að skoða hvað framtíðin ber í skauti sér. Og þá getur einmitt verið gaman að skoða stjörnuspár og sjá hvað stjörnurnar segja um árið framundan.

Hér er glæný stjörnuspá fyrir janúar 2018 frá hinni dásamlegu Guðfinnu Ingu eða Guffu eins og við kjósum að kalla hana.

Njótið með opnum huga!

Nautið – Janúar 2018

Elsku besta Nautið mitt.

Já, já, elsku Naut. Þú tekur þetta ár með stæl eins og þín er von og vísa. En ef eitthvað klikkar þá máttu ekki brjóta þig niður fyrir það. Bara anda inn og út, tæma hugann og byrja bara upp á nýtt. Þér er þá ætlað eitthvað annað.

Í kringum 10. janúar ert þú að fara að takast á við verkefni sem á eftir að verða þér farsælt og skemmtilegt. Ég veit ekki hvort þú ert að fara að setjast á skólabekk, en þetta er eitthvað alveg nýtt fyrir þér.
Bláa orkan kemur sterkt inn með þér og þetta er svona yfirveguð friðarorka. Ekki taka hlutunum svona rosalega persónulega. Þú tekur ekki ábyrgð á fullorðnu fólki – ef þú veist hvað ég er að fara. Þú mátt alveg lifa þínu lífi, enda komstu á jarðarkúluna til að gera það.
En bláu orkuna sem ég sé með þér vil ég tengja við Erkiengilinn Michael. Enda er hann tákn um frið og þú reynir að sameina huga og tilfinningar inn í hjartað þitt. Hlusta á hjartað. Það hefur alla vega alltaf reynst mér best.
Yfir heildina finnst mér þú vera að sjá fólk og aðstæður í allt öðru ljósi en þú hefur gert og það er yndislegt. Þá breytist lífið og verður þér í vil og allt verður svo miklu áreynslulausara.

Mantarðu nógu oft með þér: Ég sameina allt og alla í hjarta mínu og finn til friðar.

Tvíburinn – Janúar  2018

Elsku besti Tvíburinn minn.

Þetta er allt í áttina og kemur allt með kalda vatninu, eins og það gamla og gilda orðatiltæki segir. Það fallega við þetta stjörnumerki er að það er ávallt tilbúið til að trúa því besta. En líka elskulegi tvíburi þá máttu ekki gera þér óraunhæfar væntingar. Það bitnar alltaf mest á sjálfri/sjálfum þér ef útkoman verður ekki eins og þú sást fyrir þér.
Innri friður og að núllstilla sig er alltaf best. Og með vorinu eða jafnvel núna um miðjan mánuðinn kemur inn til þín appelsínugul orka með gylltu ívafi.

Þetta er Erkiengillin Gabriel með sína gleði og birtu. Haltu bara áfram að hlæja og hafðu húmorinn í lagi. Gabriel tengir þig við barnið í sjálfri/sjálfum þér og er svona skilaboð frá stjörnunum. Svo vertu stjarnan sem þú komst til að vera í þessu lífi.
Pússluspilið (lífið) er allt að ganga upp.

• Utanlandsferð(ir) – Ó , jú, þær verða.
• Ástin – Jú, jú.
• Peningar – Jú, jú, heldur betur.

Jú-in hér að ofan eru tékklisti sem þú hefur ábyggilega varpað út í kosmóið, eða er það ekki?

Mantraðu nógu oft með þér: Hjartað mitt er opið fyrir nýjum tækifærum. Ég segi já við ALHEIMINUM.

Krabbinn – Janúar 2018

Elsku besti Krabbinn minn,

Hvernig hefurðu það? Þú ert ábyggilega Guðs lifandi feginn að nýtt ár sé gengið í garð. Margir Krabbalingar tókust á við stór verkefni í síðasta ári. En hvað um það. Seiglan er mikil og Krabbinn er með það í sér að gefast aldrei upp.

Þú ert andlega sinnaður og það svo sem kemur ekkert á óvart með vatnsmerkin. En á þessu ári og þá sérstaklega seinnipart janúar muntu sjá mikinn tilgang. Pælingar eru þér í blóð bornar og það að „pæla“ er þinn skóli hér á jörðunni að (Hinn alþjóðlegi pælingarskóli er bestur).

• Flutningar
• Ást
• Íhugun
• Peningar og hugvit

Þetta er allt á tékklistanum þínum góða í þessum mánuði. Passaðu bara að verða ekki of óþolinmóð/ur. Fylgdu flæðinu.
Einhver smá sorg og uppgjör í gangi. En það er líka nauðsynlegt að þú leyfir þér að ganga í gegnum þetta tímabil.

Erkiengillinn Gabriel sýnir sig sterkt í kringum þig um miðjan mánuðinn og taktu eftir tilfinningunum þínum á þessu tímabili og viðbrögðum þínum gagnvart fólki og aðstæðum. Reyndu að sjá fyrir þér gyllta og bleika litinn (orkuna) og þá veistu að hann er nálægt þér og talar og miðlar í gegnum þig elsku Krabbinn minn.
Þótt þú sért vatnsmerki og orkan þín tengd inn á gula litinn þ.e. tilfinningar þínar að þá er rauði liturinn rótarstöðin mjög virk hjá þér næstu vikurnar. Þín innri ástríða sem smitar út frá sér í allar áttir. So go with the flow of love…

Mantraðu með þér alla daga: Ég fylgi flæði lífsins og leyfi mér að elska hverja frumu líkama míns. Ég er nóg!

Ljónið – Janúar 2018

Elsku besta Ljónið mitt.

Heilsan er það sem þú ert að huga að þetta árið og sérstaklega næstu vikurnar. Heilun, friður og sátt er það sem þú þráir og það er það sem þú færð. Sendu þínar óskir úti í kosmóið og vittu til að það er það sem þú færð

Orkan færist í vöxt og þá líka fara hugmyndirnar þínar að fæðast hægri vinstri.
Ekki efast um drauma þína og ekki takmarka þig því þá eru hugsanir þínar að grípa inn í .Við erum svo miklu meira en það.

Það er samt hérna ákvörðun sem þú þarft að taka upp úr miðjum mánuðinum – sé reyndar tölurnar 14 og 16 og það er verið að færa þér allt litróf regnbogans. Flýttu þér hægt og gefðu þér tíma að skoða málið – því þetta verður þér skemmtilegt andlegt ferðalag.

Taktu litlu skrefin og svo kemur hitt allt að sjálfu sér . Sjáðu fyrir þér barn sem er að læra að ganga og áður en það veit af er það farið að hlaupa og príla upp um alla veggi. Skilur þú hvað ég er að fara? Þannig verður árið hjá þér.

Erkiengillinn Chamael kemur inn með sína bleiku orku og fyllir þig ást og kærleika. En þú þarft líka að veita honum leyfi eða gefa þér leyfi til þess að hleypa þessari orku inn. Ég er á því að við þurfum alltaf að eiga fyrstu skrefin og hreyfa við orkunni sjálf og þá veit alheimurinn hvað við viljum. Svo veittu þér leyfi og hleyptu þessu inn kæra Ljón.

Mantraðu nógu oft með þér: Ég leyfi mér að breytast, njóta og þiggja.

Með ljósi og litum ávallt.

Guffa

 

 

 

 

 

 

 

 

HÉR er spáin fyrir Steingeitina, Vatnsberann, Fiskana og Hrútinn.

Og HÉR fyrir Meyuna, Vogina, Sporðdrekann og Bogmanninn.

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...