Ertu búin að öllu fyrir jólin?
Spurning sem heyrist oft í desember og enn oftar því sem nær dregur jólum. Hún liggur þarna í loftinu og bergmálar í eyrunum á okkur. Margar konur stressast upp og finna að þær eru ekki næstum því búnar að öllu og setja þá í fimmta gírinn og hamast við að reyna að framkvæma þetta allt. Sem endar auðvitað með því að þær verða dauðþreyttar, útkeyrðar, jafnvel daprar og salta að lokum jólamatinn með tárum sínum.
En hvað er þetta „allt“? Og þurfum við endilega að gera þetta „allt“?
Er ég svona yfirmáta kærulaus? Og er ég kannski að missa af einhverju merkilegu? Koma jólin ekki til mín ef ég er ekki búin að gera „allt“?
Langaði ekki til að skreyta
Gömul vinkona mín, sem er ekkert að missa sig yfir þessu „öllu“, sagðist bara alls ekki nenna þessum jólum. En velti því engu að síður fyrir sér hvort hún ætti að fara geymsluna sína og sækja eitthvað jólaskraut til að skreyta heimilið. Ekki af því hana langaði svo mikið til þess heldur af því henni fannst hún þurfa þess þar sem allir aðrir væru að skreyta. Það verður að viðurkennast að jólabarnið ég átti afar erfitt með að skilja þetta.
Hvernig er það hægt að nenna ekki jólunum? Þá getur maður alveg eins ekki nennt því að eiga afmæli eða ekki nennt sumrinu.
En þegar hún lýsti því hvernig henni fyndist jólin vera eitt stórt kapphlaup þá áttaði ég mig á því hvað hún var að fara. Hennar tilfinning er sú að fólk sé fyrst og fremst að keppast við að gefa stærstu gjafirnar, kaupa ný og dýr föt á alla fjölskylduna og bruðla við matarkaup því allt þarf að vera svo fullkomið.
Listinn langi
Þetta er virkilega umhugsunarvert og afar leitt ef mörgum líður þannig. En er þetta „allt“ sem þarf að gera fyrir jólin? Nei svo er alls ekki því það virðist töluvert meira vera á listanum. Það þarf til dæmis að baka alla vega nokkrar sortir af smákökum, skreyta heimilið að innan sem utan bæði hátt og lágt, skúra út í öll horn, taka alla skápa í gegn, þrífa gardínurnar, föndra eitthvað sniðugt og svo má ekki gleyma því að skrifa öll jólakortin.
Og er þetta þá „allt“ komið?
Reyndar ekki því ansi mörgum finnst engin jól án þess að standa í konfektgerð, kæfugerð, rauðkálsgerð, laufabrauðsgerð og svo þarf auðvitað fara út í skóg og höggva sitt eigið jólatré.
Ég er samt ekki enn viss um að þetta sé „allt“ og sumum finnst þeir eflaust þurfa að gera eitthvað enn meira svo þetta verði nú allt alveg fullkomið. Manni fallast hreinlega hendur við að lesa þennan lista. Af hverju þarf að gera svona mikið fyrir jólin? Og þarf allt að vera fullkomið?
Með háan skítastuðul
Hvort sem það er kæruleysi eða heimska í mér eða margra ára reynsla af jólaundirbúningi þá finnst mér ég ekki þurfa að gera þetta „allt“. Og ég átta mig enn betur á því þegar ég les yfir þennan lista. Sem betur fer er ég líka með nokkuð háan skítastuðul, sem þýðir að ég fer ekkert á taugum þó ég sjái örlítið ryk eða smá skít. Það er líka hvort eð er alltaf svo mikið myrkur í desember að það sér enginn neitt. Þannig að það er um að gera að nota kerti og jólaljós til að gera heimilið huggulegt og enginn tekur eftir neinu nema notalegri stemningu.
Vissulega geri ég eitt og annað á þessum lista en ég geri það á mínum forsendum, sem þýðir að ég geri hlutina ef mig langar til þess, ef ég nenni og ef ég hef tíma. Ég er löngu vaxin upp úr því að finnast allt þurfa að vera fullkomið því reynslan hefur kennt manni að það er fátt í lífinu sem er fullkomið. Lífið er oftast yndislegt en lífið er líka fullt af óvæntum uppákomum sem geta breytt ýmsu eða jafnvel öllu.
Jólin koma samt
Aðventan er yndislegur tími og ég veit fátt skemmtilegra en að nota hann til að vera með fjölskyldunni minni og hitta vini á tónleikum eða kaffihúsum við kertaljós. Það er svo miklu betra en að rembast við að uppfylla einhverjar kröfur samfélagsins eða tilbúnar væntingar. Ég get svo svarið það að skíturinn fer ekki neitt þótt þið farið út og hittið fólk, og reynsla mín af því að halda jól erlendis hefur kennt mér að jólin koma hvort sem maður tekur íslensku leiðina á þau eða ekki. Þau koma hvort sem maður tekur skápana í gegn eða ekki. Þau koma meira að segja þó maður baki ekkert og fái sér ekki nýjan kjól.
Jólin eru tími kærleikans og mér finnst stórkostlegt að sjá og finna hvað ólíklegasta fólk verður kærleiksríkt á þessum árstíma. Njótum þess að vera til og eyða tíma með þeim sem okkur þykir vænt um og höldum jólin eins og okkur hentar. Það getur verið á allt annan hátt en hjá fólkinu í næsta húsi. Og ég vona svo innilega engin kona gráti yfir pottunum á aðfangadag af því hún náði ekki að gera „allt“ fyrir jólin.
Ég veit að jólin munu koma til mín því ég er tilbúin í hjarta mínu að taka á móti þeim þótt öll ytri umgjörð verði ekki fullkomin, hvað þá samkvæmt listanum góða. Og þess vegna nenni ég jólunum – en nei ég er ekki búin að „öllu“ fyrir jólin og mun líklega aldrei verða.
Megið þið eiga gleðileg og kærleiksrík jól!
jona@kokteill.is