Emmy sjónvarpsverðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles að kvöldi 17. september og flykktust prúðbúnar stjörnurnar á svæðið hver annari glæsilegri.
Það sem hins vegar vakti sérstaka athygli okkar hér á Kokteil var hvað „eldri“ konurnar voru glæsilegar og báru af í stíl og fágun.
Má þar sérstaklega nefna hina tæplega áttræðu Jane Fonda sem er hér á myndinni til hliðar. Hún er alveg einstaklega smart og glæsileg í þessum flotta bleika kjól.
En við látum myndirnar tala sínu máli
Felicity Huffman úr Desperate Housewives – 55 ára
Jessica Lange – 68 ára
Nicole Kidman – 50 ára
Susan Sarandon – 70 ára
Michelle Pfeiffer – 59 ára
Viola Davis – 52 ára
Myndir: Getty