Sérfræðingar segja að það að naga neglur geti leitt til ýmissa heilsufarsvandamála.
Þú nagar neglurnar á meðan þú lest tölvupóstinn, horfir á sjónvarpið og oftar. Þú laumar fingrunum upp í þig og smellir nöglunum á milli tannanna og nagar í nokkrar mínútur og jafnvel fattar ekki að þú ert að því fyrr en eftir smástund.
Mamma þín sagði við þig að þetta væri slæmur ávani og þú hugsar um samstarfsmenn þína sem senda þér hornauga á meðan þú nagar og nagar.
En er hættulegt að naga á sér neglurnar?
„Já og fyrir því eru nokkrar ástæður“ segir Richard Scher læknir, sem er sérfræðingur við Weill Cornell Medical College.
Í fyrsta lagi þá safnast undir neglurnar allskyns sýklar. Aðallega er það baktería sem kallast enterobacreriaceae – hún inniheldur sem dæmi salmonellu og E.coli. þessar bakteríur geta þrifist vel undir nöglum.
Þegar þú nagar neglurnar þá enda þessar bakteríur bæði í munni og maga og þar geta þær gert mikinn usla og jafnvel orsakað sýkingar sem leiða til niðurgangs og magaverkja.
Þeir sem hafa nagað neglurnar í langan tíma geta einnig þjáðst af sýkingu sem heitir paronychia, segir Scher. Sprungur á húðinni í kringum neglurnar opna fyrir bakteríur. Þetta orsakar bólgur, húðin verður rauð og gröftur getur myndast við eða undir nöglum. Í verstu tilvikunum þarf að fara til læknis til að láta tæma gröftinn og er sýklalyfjameðferð nauðsynleg.
Ef sýkingin er sökum bakteríu þá getur nögl orðið afar viðkvæm og þig verkjar í hana.
Vírusinn sem orsakar vörtur, HPV er einnig…
Lesa meira HÉR