Hollt og gott túnfisksalat með miðjarðarhafsívafi. Fullt af próteini, vítamínum og góðri fitu.
Uppskriftin er fyrir tvo.
Það sem þarf
1 stórt avókadó
1 dós af túnfiski – hella vökva af
1 ½ msk af pestó – t.d. grænt
2 msk af sólþurrkuðum tómötum í mauki og ekki löðrandi í olíu
2 msk af ólífum – saxa þær niður (t.d. svartar)
salt og pipar eftir smekk
2 tsk furuhnetur (til skreytingar) – gott að rista þær fyrst á pönnu í 1-2 mínútur og saxa svo niður.
ferskt niðurskorið basil (til skreytingar)
Aðferð
Skerið avókadó til helminga og fjarlægið fræið.
Skafið innan úr þeim helming þar sem fræið var svo myndist frekar stór og djúp hola. Þetta ættu að vera um 3 msk af avókadó. Gerðu það sama við hinn helminginn.
Setjið þessar 6 msk af avókadó í skál og bættu túnfiski og pestó saman við. Stappið þessu vel saman.
Hrærið nú sólþurrkuðu tómötunum og ólífunum saman við þar til allt er vel blandað saman.
Kryddið til með salti og pipar.
Skiptið blöndunni á milli avókadó helminga, troðið því ofan í avókadóin og hlaðið ofan á (þetta verður frekar hátt).
Dreifið svo furuhnetum og basil yfir allt saman.
Njótið!
Uppskrift frá