Sykur er hluti af okkar daglega lífi – því hvort sem okkur líkar betur eða verr þá er sykur í næstum því öllu. Hvort sem það eru þau kolvetni sem við látum ofan í okkur eða drykkirnir sem við drekkum.
En það er mikilvægt að vera á varðbergi að sykurneyslan fari ekki úr hófi fram því of mikil sykurneysla er varhugaverð.
Of mikill sykur getur haft alvarlegar aukaverkanir og haft áhrif á lífsgæði okkar. Og þá er ekki bara verið að tala um offitu.
Hér eru fimm einkenni þess að þú borðir of mikinn sykur
1. Liðverkir
Ef þú ert stöðugt með liðverki ættirðu að skoða hvort of mikilli sykurneyslu sé um að kenna.
Hreinn sykur hækkar blóðsykurinn í líkamanum sem leiðir til þess að liðir líkamans geta bólgnað upp. Og ef liðir líkamans eru viðkvæmir gerir mikil sykurneysla ástandið enn verra.
2. Stöðugt hungur
Ekki gleyma að sykur er ekki bara að finna í sætindum eins og kökum og sælgæti heldur einnig í kolvetnaríkri fæðu eins og brauði og pasta. Þannig að ef þú borðar t.d. máltíð sem inniheldur nær eingöngu kolvetni er líklegt að líkaminn öskri mjög fljótlega á orku – sem lýsir sér í því að þú finnur til mikillar svengdar.
3. Heilaþoka
Sykur eykur þörf líkamans á insúlíni, en insúlín og glúkagon eru hormón sem hjálpa til við blóðsykursstjórnun líkamans.
Insúlín og glúkagon eru eins og jing og jang. Þegar magn insúlíns er mikið í líkamanum veldur það því að glúkósi safnast upp í blóðinu. En það leiðir síðan til hungurs, þreytu og heilaþoku og þú átt erfitt með að einbeita þér.
Of mikil sykurneysla getur því haft þau áhrif að þú sért ekki nógu skýr í kollinum.
4. Þyngdaraukning og hormónarnir
Það vita allir að mikil sykurneysla leiðir til þyngdaraukningar. En sykurinn getur líka haft slæm áhrif á hormóna líkamans og eins og flestir vita þá stjórna hormónarnir öllu.
Of mikil sykurneysla hefur áhrif á Leptín, sem er hormón er gegnir stóru hlutverki í meltingu og matarlyst. Ef lítið er af Leptíni í líkamanum erum við oftar svöng og það hægist á brennslunni.
5. Skemmdar tennur
Þetta vita auðvitað allir – að sykur fer illa með tennurnar. Ef þú ert með skemmdar tennur er ekki ólíklegt að allt of mikilli sykurneyslu sé um að kenna.