Gular og blettóttar neglur eru ekki fallegar. En vissir þú að það eru til leiðir sem hvítta neglurnar og ná þessum blettum af?
Þú þarft ekki naglalakk til að fela gular blettóttar neglur lengur.
Hér eru nokkrar góðar aðferðir
Sítrónur
Blandaðu sítrónusafa, vatni og nokkrum dropum af sjampói saman í skál. Sýran í sítrónusafanum fjarlægir bletti af nöglunum og sjampóið þvær þá af yfirborði naglanna. Hafðu þær í bleyti í 5 til 10 mínútur og skolaðu svo hendurnar með köldu vatni. Mundu að bera á þig góðan handáburð eftir þetta til að koma í veg fyrir handþurrk.
Það má líka skera sítrónu í tvennt og nudda henni á neglurnar til að fá þær hvítari og bjartari á náttúrulegan hátt.
Hvítt edik
Hvítt edik inniheldur sýru og er góð til að ná af blettum á erfiðum yfirborðum eins og nöglum. Þú setur vatn og matskeið af hvítu ediki í skál. Hafðu fingur í bleyti í 5 til 10 mínútur og þvoðu þér svo um hendurnar og þurrkaðu. Berðu á þig handáburð í lokin.
Matarsódi
Matarsódi hreinsar neglurnar og fær þær til að glansa. Settu…
Lesa meira HÉR