Hún segir móður sinni, sem er með Alzheimer, á hverjum degi að hún eigi von á barni – og í hvert skipti verður móðirin jafn glöð.
Þegar Christine, 38 ára, vissi að hún væri ófrísk vildi hún auðvitað segja móður sinni það strax. En þar sem móðir hennar er með Alzheimer vildi hún gera það á eftirminnilegan hátt.
Hún ákvað því að taka það upp og í nokkra daga sagði hún móður sinni, sem er 77 ára, á hverjum degi og stundum nokkrum sinnum á dag, að hún ætti von á barni. Og í hvert einasta skipti varð móðirin yfir sig glöð og skríkti af ánægju.
Myndbandið ætlar Christine að eiga til minningar og til að geta sýnt ófæddri dóttur sinni það seinna meir.
Þetta er svo ljúfsárt. Ljúft að hún getur glatt móður sína á hverjum degi en auðvitað svo sárt að þurfa að horfa upp á ástvin sinn hverfa inn í þennan sjúkdóm.