Ég fékk skemmtilega áskorun um daginn og hausinn fór á fullt – og útkoman er þessi kaka. En áskorunin fólst í því að nota bæði nýja lakkrísskyrið og sterkar djúpur.
Ég ákvað að taka þetta alla leið og setti skyrið bæði í kökuna sjálfa og í kremið.
Dúnmjúk og hrikalega góð
Ég varð smá smeyk um stund þegar ég sá hvað deigið hjá mér varð þykkt en það voru svo sannarlega óþarfa áhyggjur því að kakan kom dúnmjúk og flott úr ofninum.
Kakan er í ruglinu góð og því óhætt að segja að þessi tilraun hafi heppnast gríðarlega vel. Það er þetta dásamlega pipar-lakkrís eftirbragð sem lætur mann hugsa um hana lengi eftir fyrsta bitann og maður verður sólginn í meira og meira. Uppskriftin birtist á kakanmin.com
Það sem þarf
200 g hveiti
200 g sykur
40 g kakó
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
175 g mjúkt smjör
2 stór egg
2 tsk vanilludropar
1 lítil dolla KEA lakkrísskyr
Í kremið
1 poki sterkar Djúpur
150 g suðusúkkulaði
115 g smjör
1 lítil dolla KEA lakkrísskyr
4 ½ – 5 bollar flórsykur
Aðferð
Kakan
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið formin (ég notaði 2 x 20 cm hringform).
Setið öll hráefnin saman í hrærivél eða matvinnsluvél og blandið saman þar til deigið verður þykkt og mjúkt. Ef þið eruð sérvitringar eins og ég þá má líka byrja á að blanda saman hveiti, sykri, lyftiefnum og smjöri saman í eina skál og kakói, skyri, eggjum og vanilludropum í aðra. Blanda þessu svo öllu rólega saman.
Setjið deigið í formin og bakið í ca 25-35 mínútur.
Leyfið kökubotnunum að kólna í 10 mínútur áður en þeir eru teknar úr formunum.
Kremið
Saxið Djúpurnar smátt og suðusúkkulaðið gróflega, og skerið smjörið í teninga.
Bræðið þetta allt saman yfir vatnsbaði.
Setjið súkkulaðiblönduna í stærri skál og kælið í ca 5 mínútur.
Bætið flórsykrinum og skyrinu saman við og þeytið vel saman.
Setjið kremið á milli kökulaga og yfir kökuna og skreytið með söxuðum sterkum djúpum ef þið viljið fá extra mikinn lakkrís á kökuna.

Margrét Theodóra