Gamaldags marmarakaka er í uppáhaldi hjá mörgum og er hún víða bökuð annað slagið. Í okkar huga er ákveðinn blær nostalgíu yfir marmarakökunni þar sem hún tengist ljúfum minningum.
Nýtt tvist
En hér er komið nýtt tvist á þessa klassík og sítrónu bætt við og bræddu súkkulaði dreift yfir.
Það var hún svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem skellti í þessa marmaraköku með súkkulaði og sítrónu (uppskrift frá Hembakat).
Það sem þarf
- 3 egg
- 2 ½ dl sykur
- 1 ½ tsk lyftiduft
- 3 dl hveiti
- 100 g smjör
- 1 dl mjólk
- 2 tsk vanillusykur
- sítrónuhýði af einni sítrónu (passið að rífa léttilega þannig að hvíti hlutinn komi ekki með)
- 1 ½ msk kakó
Yfir kökuna
- um 25 g suðusúkkulaði, brætt
Aðferð
Hitið ofninn í 180°.
Hrærið egg og sykur saman þar til blandan er létt og ljós.
Bætið hveiti og lyftidufti saman við.
Bræðið smjörið og blandið því saman við mjólkina.
Hrærið blöndunni saman við deigið, þar til það er orðið slétt.
Setjið helminginn af deiginu í aðra skál.
Hrærið vanillusykri og rifnu sítrónuhýði saman við deigið í annarri skálinni og kakói saman við deigið í hinni skálinni.
Setjið ljósa deigið í smurt formkökuform (ca 1 ½ líter að stærð).
Setjið súkkulaðideigið yfir og blandið varlega saman með gaffli.
Bakið neðst í ofninum í 40-45 mínútur.
Látið kökuna kólna í forminu.
Skreytið með brædda súkkulaðinu.
Njótið!