Við erum komin í jólaskap og gjafastuð – og viljum leyfa ykkur að kynnast þessum frábæru kertum frá WoodWick sem eru nýkomin til landsins.
Snarka eins og arineldur
Við eigum ekki til orð yfir þessa dásemd og höfum aldrei prófað svona kerti áður. Ekki nóg með að ilmurinn sé dásamlegur heldur snarkar í kertunum eins og arineldi. Já grínlaust, þau virkilega snarka!
En auk þess eru þau virkilega falleg á borði og sóma sér vel hvar sem er. Kertin eru auðvitað frábær í jólapakkann, enda fátt jólalegra en að gefa kerti í jólagjöf. Þau eru klárlega á okkar óskalista.
Kósý með snarkandi kerti
Það er fátt notalegra núna í myrkrinu en að hafa það kósý og sitja við kertaljós og auðvitað enn notalegra ef það snarkar í kertunum og þau ilma vel.
Við ætlum að gefa heppnum vini okkar stórt WoodWick kerti sem er gert úr hágæða ilmolíum með um 180 klukkustunda brennslutíma.
Kertin koma í þremur stærðum og í mörgum ólíkum ilmtegundum. Þau kosta frá 2.190 og upp í 5.990 krónur og þú færð þau í HAGKAUP.
Gjafaleikur
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessum pósti síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum út sunnudaginn 4. desember.
Sjáðu hér hvernig kertið snarkar