Hvað við látum ofan í okkur skiptir miklu máli upp á það hvernig líkaminn vinnur.
Sumar fæðutegundir hjálpa okkur og líkamanum á meðan aðar gera nákvæmlega ekkert og svo eru það þær sem gera lítið annað en að skemma út frá sér.
Rétt fæða fyrir kynlífið
En getur verið að rétta fæðan hjálpi karlmönnum að bæta frammistöðu sína í rúminu?
Vísindamenn telja að svo megi vera. Fæða sem hjálpar líkamanum að vinna nituroxíð er talin geta aukið kyngetuna. Nituroxíð er gastegund sem gegnir mörgum hlutverkum í líkamanum, t.d. samdrætti vöðva, blóðflæði og æðavíkkun. Og allt þetta hjálpar karlmönnum í kynlífinu.
En hvað geta karlmenn borðað til að hjálpa líkamanum að vinna þetta efni?
Þessar fæðutegundir eru ríkar af nituroxíð
Baunir
Valhnetur
Möndlur
Kaldsjávarfiskur (eins og lax og túnfiskur sem dæmi)
Hafrar
Sojavörur
Og svo er það rauðvín og te
Þá er einnig talið að vörur sem innihalda bioflavonoids geti hjálpað karlmönnum í kynlífinu. En hér eru það andoxunarefnin sem hafa þessi jákvæðu áhrif.
Bioflavonoids er aðallega að finna í ávöxtum og grænmeti, eins og t.d. appelsínum, grape, eplaberki, berjum, lauk, radísum, tómötum, brokkólí, sellerí, blaðlauk og steinselju.
En bioflavonoids er líka að finna í miklu magni í
Rauðvíni
Te (sem inniheldur koffín)
Heilkornavörum