Við vitum öll hvað súkkulaði og lakkrís er frábær blanda og þess vegna föllum við alltaf fyrir súkkulaðikökum þar sem lakkrís kemur við sögu.
Þessi brúnka með piparfylltum lakkrísreimum og Johan Bülow lakkrísdufti tekur þetta alveg í næstu hæðir.
Það var hún Lilja Katrín á blaka.is sem skellti í þessa lakkrísbombu.
Það sem þarf
Brúnka
- 30 g kakó
- 1/4 tsk sjávarsalt
- 115 ml sjóðandi vatn
- 60 g suðusúkkulaði (grófsaxað)
- 45 g bráðið smjör
- 200 ml ólífuolía
- 2 egg
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vanilludropar
- 325 g sykur
- 175 g hveiti
- 100 g piparfylltar lakkrísreimar frá Appollo (skornar í bita)
- 2 msk lakkrísduft Johan Bülow
Lakkrísgljái
- 8-10 lakkrískaramellur
- 2 msk rjómi
- 50 g lakkrísreimar frá Appollo
Aðferð
Brúnka
- Hitið ofninn í 180°C og takið til brúnkuform, 20×20 sentímetra. Klæðið það með smjörpappír og látið pappírinn ná upp með hliðunum.
- Blandið kakó, salti og sjóðandi vatni saman í stórri skál og hrærið. Bætið súkkulaðinu saman við og hrærið þar til allt er bráðnað saman.
- Bætið smjöri og olíu saman við og því næst eggjum, eggjarauðu og vanilludropum.
- Hrærið sykri saman við og því næst hveitinu.
- Bætið lakkrísreimabitum og lakkrísdufti saman við og hellið deiginu í form.
- Bakið í 25-30 mínútur og leyfið kökunni að kólna lítið eitt áður en gljáanum er hellt yfir.
Lakkrísgljái
- Setjið karamellur og rjóma í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur í senn þar til allt er bráðnað saman. Munið að hræra eftir hverjar 30 sekúndur.
- Hellið lakkrísgljáa yfir kökuna og skreytið með ófylltum lakkrísreimum.
Svo er bara að njóta!
Þú færð allt hráefni í þessa uppskrift í