Því fylgir ávallt mikil spenna og tilhlökkun þegar nýjir bílar eru frumsýndir.
Í síðustu viku var veisla fyrir bílaáhugafólk en þá var forsýndur, með mikilli viðhöfn, glænýr bíll frá Toyota.
Um er að ræða fyrsta eintakið af TOYOTA C-HR en bíllinn þykir einstaklega vel heppnaður og bíða margir spenntir eftir að fá að keyra þessa flottu kerru.
Hífður upp á þak í miðbæ Reykjavíkur
Bíllinn var hífður upp á þak á húsi gömlu Óperunnar þar sem hann naut sín einstaklega vel í rökkrinu eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.
Að þessu sinni var stoppið þó stutt hjá C-HR á Íslandi þar sem hann var aðeins fenginn hingað til lands til kynningar. Að sýningu lokinni var því bíllinn sendur aftur úr landi.
En bílaáhugamenn geta þó látið sig hlakka til því C-HR verður kynntur hjá söluaðilum Toyota um allt land í janúar 2017 – og fer þá í almenna sölu.
Sjáðu bílinn, veisluna og veislugesti hér í myndbandinu.