Snyrtivörufyrirtækið Dove er duglegt við að nota konur af öllum stærðum og gerðum í auglýsingaherferðir sínar. Þau höfða til kvenna með því að fá þær til að hugsa um sjálfar sig á annan og jákvæðari hátt.
Ein af herferðum þeirra er þau kalla Choose Beautiful, er þar engin undantekning.
Dove spyr konur hvort þeim finnist þær sjálfar vera fallegar.
Til að sýna fram á að fegurð er val fóru þau til London, San Francisco, Shanghæ, Delí og Sao Paulo. Í þessum borgum voru konur látnar velja á milli þess að ganga inn um tvennar dyr, annars vegar merktar „falleg“ og hins vegar „venjuleg“.
Niðurstöðurnar eru ansi áhugaverðar og endurspegla hvernig konum líður og hvað þeim finnst um sjálfar sig.