Hefur þú einhvern tímann tekið eftir því að þeir sem hafa það að lifibrauði að syngja, eða þá fólkið í kringum þig sem hefur ánægju af því að syngja, er ávallt í léttu og dásamlegu skapi ?
Ástæðan fyrir þessu er sú að söngur hefur mjög jákvæð áhrif á heilsuna.
5 atriði sem söngur hefur áhrif á er viðkemur heilsunni
1. Bætir skapið
Þegar þú syngur þá losnar um sömu hormóna sem flæða um líkamann og þegar þú stundar kynlíf, eða borðar súkkulaði – og þú ert róleg/ur og afslöppuð/slappur. Söngurinn losar um endorfín sem eykur á orkuna og þú ert þar af leiðandi hvorki orkulaus eða andlaus.
2. Gott fyrir lungun
Að syngja í nokkrar mínútur er afar góð æfing fyrir lungun. Söngur virkjar magavöðva ásamt þindinni sem gera það að verkum að blóðflæðið verður stöðugra og betra. Og þegar þú syngur þá dregur þú andann dýpra sem þýðir að þú ert að fylla lungun af súrefni og losar um spennu í vöðvum.
3. Byggir upp vináttu og sambönd
Að syngja í hópi með öðrum hefur afskaplega góð áhrif á líkamann. Hópsöngur eins og t.d að vera í kór er afskaplega góður til að tengjast félagslega öðru fólki. Það eflir sjálfstraustið og ef þú átt það til að verða þunglynd/ur eða kvíðin/n þá er þetta málið. Skráðu þig í kór og þú kemst ekki hjá því að mæta og hættir að einangra þig.
4. Hreinsar ennis og kinnholur
Að syngja hreinsar á…
Lesa meira HÉR