Hvert af okkar fimm skilningarvitum værir þú mest hrædd/ur við að missa?
Ef þú ert eins og flestir aðrir þá er svarið eflaust að missa sjónina.
Sjónin er okkur afar dýrmæt svo það er ekkert skrýtið að það séu allskyns mýtur í gangi um það hvað getur skemmt sjónina og hvað getur varið hana.
Hér að neðan eru fimm mýtur sem við afsönnum og einnig hvað það er sem virkilega ver sjónina.
Mýta: Að gera augnæfingar mun seinka nauðsyn þess að þurfa gleraugu
Staðreynd: Augnæfingar bæta ekki sjónina eða verja hana. Sjónin þín stólar á marga þætti, eins og t.d lögun augnknattar og heilbrigði vefja í augum. Og hvorugt getur verið bætt eða breytt með augnæfingum.
Þegar við eldumst þá eldast auðvitað augun okkar með og sjónin fer að versna og hjá sumum getur sjónin versnað hratt. Það þarf að læra að þekkja þá áhættuþætti er koma að sjóninni og ákveðnum augnsjúkdómum. Má þar nefna t.d gláku, vagl í augum og aldurstengda sjúkdóma. Einnig getur sjón versnað hjá sykursjúkum.
Hvaða skref er best að taka til að koma í veg fyrir augnsjúkdóma eða hvernig best er að meðhöndla þá áður en sjónin verður mjög slæm?
Mýta: Að lesa í rökkri mun skemma sjónina
Staðreynd: Að lesa í litlu ljósi skemmir ekki sjónina. Hins vegar munu augun finna fyrir þreytu fyrr en ella ef þú lest við gott ljós. Besta leiðin til að lesa er að vera með ljós sem skín beint á það sem þú ert að lesa.
Mýta: Gulrætur eru það besta sem þú getur borðað fyrir sjónina
Staðreynd: Gulrætur innihalda mikið af A-vítamíni sem er gott fyrir sjónina. En ferskir ávextir og dökkgrænt grænmeti sem inniheldur mikið af andoxunarefnum og vítamínum eins og C og E eru einfaldlega betri fyrir sjónina.
Andoxunarefnin geta jafnvel hjálpað til við að verja augun gegn vagli og aldurstengdum sjúkdómum. En alls ekki skal búast við því að þessi efni lagfæri sjón á nokkurn hátt eins og t.d nærsýni eða fjarsýni.
Mýta: Það er voða gott að vera ekkert alltaf…
Lesa meira HÉR