Þetta er eitt af þessum ótrúlega snjöllu trixum sem maður er svo rosalega glaður að læra.
Hver kannast ekki við að hafa brennt allt við á pönnunni og standa svo kófsveittur við að reyna að ná öllu af henni aftur?
Og jafnvel ná því bara aldrei af.
Hér er komið snilldarráð!
Taktu pönnuna af hitanum.
Settu vel af vatni í hana.
Og bættu svo örlitlu af uppþvottalegi út í vatnið.
En hér er svo aðal trixið
Taktu mýkingarklút, þessa sem maður notar í þurrkarann, og leggðu ofan í vatnið.
Láttu þetta liggja í að minnsta kosti klukkutíma.
Sjáðu svo undrið gerast – pannan verður eins og ný!
Að lokum er pannan þvegin eins og venjulega og skoluð vel.