Það er margt sem skiptir máli í lífinu án þess að við áttum okkur á því við fyrstu sýn.
Oftar en ekki gleymum við því hvað það er sem virkilega skiptir máli til þess að við getum átt gott og innihaldsríkt líf.
Hér eru tíu atriði sem benda til þess að líf þitt sé bara nokkuð gott
1. Þú færð að borða á hverjum degi.
2. Þú hefur aðgang að hreinu og drykkjarhæfu vatni.
3. Þú hefur þak yfir höfuðið.
4. Þú býrð í friðsömu landi.
5. Þú átt föt til skiptanna.
6. Þú átt einhverja að sem þykir vænt um þig.
7. Þú átt kost á því að mennta þig.
8. Þú kannt og getur fyrirgefið öðrum.
9. Þér þykir vænt um aðra og það er ást í kringum þig.
10. Þú óskar öðrum velfarnaðar og kannt að samgleðjast.
Og síðast en ekki síst: Þú ert HÉR og NÚ, lifandi – svo LIFÐU núna en ekki geyma það!