Við fáum einfaldlega ekki nóg af þessari 10 ára gömlu norsku stúlku. Rödd hennar og fas er seiðandi og lætur manni líða vel – og þetta nýjasta myndband hennar er þar engin undantekning.
Angelina er ekki eins og flestar aðrar 10 ára stúlkur. Hæfileikar hennar eru ótvíræðir og virkar hún miklu eldri en hún er og það er líkt og hún sé með gamla sál eins og oft er sagt.
Og hún hlustar ekki á poppstjörnur eins og Beyoncé eða Katy Perry – nei þessi unga snót hlustar á jass, Billie Holiday, Frank Sinatra og Dinah Washington.
Árið 2014 vann Angelina Norway´s Got Talent og sló rækilega í gegn. Og hróður hennar hefur borist víða enda einstakir hæfileikar hér á ferð. Hún býr í Osló og spilar á píanó, fiðlu og flautu auk þess að leggja stund á söng.
Sjáðu meira með Angelinu HÉR