Með hærri aldri er ekkert ólíklegt að kynlífið minnki og hjá sumum jafnvel fjari út.
Slíkt getur gerst þegar pör hafa verið lengi saman. En auk þess getur breytingaskeið kvenna líka haft þessi áhrif.
Myndu velja svefninn
Hjá mörgum konum sem eru að ganga í gegnum breytingaskeið er ýmislegt annað en kynlíf efst á óskalistanum. Svefn er þeim t.d. ofarlega í huga og mikilvægur enda getur hann verið af skornum skammti og þjást margar konur af svefnleysi á þessu tímabili.
Þess vegna myndu margar þeirra, án þess að hugsa sig um, skipta á góðum nætursvefni og kynlífi.
En er ekki bæði hægt að stunda kynlíf og sofa vel?
Rannsóknir sýna fram á að kynlíf getur hjálpað til við að öðlast góðan svefn. Og auðvitað ekki bara fyrir konur heldur karla líka. Kynlíf er mikilvægt fyrir nándina í sambandinu. Gott kynlíf þarf ekki að heyra sögunni til þótt aldurinn færist yfir. Reyndar eru margir sem telja að kynlífið verði betra með árunum en eins og með flest annað þá krefst það vinnu að halda því við.
Ef kynlífinu er veitt lítil athygli er ekkert óeðlilegt að það blómstri ekki. Ef eitthvað er bilað þá reynum við að laga það – og það ætti líka að hafa í huga með kynlífið.
Hugsið um eigin þarfir
Ekki eyða allri tilfinningaorkunni í börnin eða barnabörnin. Hjón þurfa að gæta sín á því að vera par og mega ekki gleyma að sýna hvort öðru athygli. Þegar börnin eldast og um hægist er fullkomlega eðlilegt að láta sjálfan sig og hjónabandið ganga fyrir. Ekki hafa neitt samviskubit yfir því.
Þótt þið setjið ykkur sjálf og samband ykkar í fyrsta sæti er ekki þar með sagt að þið elskið ekki börnin eða barnabörnin ykkar. Þið þurfið einfaldlega líka að hugsa um ykkar eigin þarfir.
Því oftar sem þið stundið kynlíf því innilegra verður sambandið og með því aukast einnig líkurnar á að þið hafið meiri áhuga á því að leggja ykkur fram við kynlífið. Það er staðreynd að líkamleg snerting og kynlíf eru lykilþættir í rómantísku sambandi.
Reynið því að eiga ykkur stund alla vega einu sinni í viku þótt ykkur langi kannski miklu meira að sofa eða jafnvel brjóta saman þvott. Því þegar þið eruð komin á skrið þá fyrst hefst fjörið!