Okkur finnst þetta alveg snilldar aðferð til að ná naglalakki af nöglunum.
Hver kannast ekki við að nudda bómullinni endalaust og hamast hreinlega á nöglunum til að ná lakkinu af?
Þess vegna er þetta svo mikil snilld – ekkert nudd og vesen.
Það sem þú þarft
Litla krukku
2 hreinsisvampa
Naglalakkshreinsi eða aceton
Og svona gerirðu þetta
Lætur svampana í krukkuna – klippir aðeins af þeim ef þarf.
Hellir naglalakkshreinsi yfir allan svampinn.
Setur eina nögl í einu ofan í til að hreinsa lakkið af.
Sjáðu hér í myndbandinu nákvæmlega hvernig þetta er gert