Fita í mataræði er afar umdeild. Það má heyra fólk rífast um dýrafitu, fræolíur og næstum allt þar á milli.
En ein af fáum fitum sem að fólk virðist vera sammála um er extra virgin olífuolían. Þessi olía er hluti af miðjarðarhafsmataræðinu og hefur verið á borðum heilbrigðustu þjóða heims afar lengi.
Til eru ansi margar rannsóknir varðandi það hvaða áhrif ólífuolía hefur á heilsuna. Þessar rannsóknir sýna að fitusýrur og andoxunarefnin í olíunni hafa kraftmikinn ávinning á heilsuna, eins og t.d á hjartasjúkdóma.
Hvað er ólífuolía og hvernig er hún framleidd?
Ólífuolía er olía sem er pressuð úr ólífum, ávexti ólífu trésins. Framleiðslan er afar einföld…. ólífurnar eru einfaldlega pressaðar og olían kemur úr þeim. En það er samt eitt stórt vandamál með ólífuolu, hún er ekki alltaf sú sem þú heldur. Það eru nefnilega á markaðinum ódýrari útgáfur af ólífuolíu sem innihalda aukaefni og eru jafnvel þynntar út með annarskonar olíum.
Þannig að það skiptir heilmiklu máli að kaupa rétta tegund af ólífuolíu
Besta tegundin er extra virgin ólífuolía. Hún er framleidd á náttúrulegan hátt og er alveg hrein og án allara aukaefna.
Ólífuolía sem er sönn extra virgin hefur einstakt bragð og er rík af andoxunarefnum. Það er ástæðan fyrir því að alvöru ólífuolía er svona góð fyrir okkur.
Svo eru til…
Lesa meira HÉR