Hún fagnaði 82 ára afmælinu sínu í júní og segir aldur bara vera tölu.
Og þegar maður sér hana Ernestine þá er ekki hægt annað en að taka undir það með henni.
Aldrei of seint að byrja
Ernestine er elsta vaxtarræktarkona í heimi og það er síður en svo algengt að sjá áttræða konu í slíku formi.
En hún hefur ekki alltaf verið svona dugleg í ræktinni því Ernestine hóf ekki að lyfta og æfa fyrr en hún var orðin 56 ára gömul. Það er því, eins og við segjum hér á Kokteil – Það er aldrei of seint að byrja að stunda hreyfingu og líkamsrækt.
Þessi vel á sig komna vaxtarræktarkona hjálpar líka öðrum að komast í gott form og því reynir hún að vera góð fyrirmynd fyrir þá sem koma í tíma til hennar. Hún æfir daglega og borðar það sem hún telur rétt fyrir sinn líkama.
Þetta er nokkuð magnað!
Sjáðu Ernestine í myndbandinu hér að neðan.