Öllu hefur fleygt fram á síðustu árum, líka húsverkunum. Nú eru t.d. til ryksuguvélmenni, mjög svo tæknilegt skúringadót, og allskyns önnur tæki og tól, efni og lausnir sem hægt er að grípa til þegar þess þarf í heimilishaldinu.
Gamalt og gott
En þrátt fyrir allar þessar nýjungar er margt af því sem mömmur okkar og ömmur og jafnvel langaömmur lærðu hér í gamla daga sem enn er í fullu gildi. Gömul húsráð eiga enn við.
Hér að neðan eru ráð úr gamalli blaðagrein en greinin bar þessa skemmtilegu fyrirsögn: Fnykurinn útlægur ger! Og hún fjallar um gömul og góð ráð til að eyða vondri lykt.
Kíkjum aðeins á þessi ráð
1. Ef fatnaður lyktar torkennilega, til dæmis ef maður hefur gleymt honum í þvottavélinni, er gott að nota matarsóda í stað hefðbundins þvottaefnis næst þegar fötin eru þvegin, til að losna við lyktina.
2. Inni á baðherbergi má yfirleitt finna ýmsan óþef. Rök baðmotta lyktar illa. Til að koma í veg fyrir þá ólykt er gott að venja sig á að hengja hana á sturtuhengið eða leggja hana á baðkarsbrúnina eftir sturtu eða bað.
3. Í sumarbústöðum, geymslum, hjólhýsum eða öðru sem venjulega er ekki kynt yfir vetrartímann getur myndast fúkkalykt. Einfalt ráð er að skilja eftir kol á gólfinu. Þau draga til sín raka.
4. Til að losna við reykingalykt beitir fólk ýmsum ráðum. Sú sem er algengust meðal reykingarmanna er að segja sjáfum sér að lyktin sé ekkert svo sterk eða vond. Þetta dugar samt ekki öllum en þeir geta huggað sig við þá vitneskju að það dregur stórlega úr reykingalykt að setja nokkur glös með vatni og ediki blönduðu til helminga um húsið. Til að ná fram hámarksárangri er gott að vera með þetta tilbúið áður en reykingafólkið mætir á staðinn.
5. Ef sveppir hafa myndast í þvottavélinni með tilheyrandi óþef er sniðugt að setja þvottaefni í hólfið, stilla hana á suðu og láta hana ganga tóma eina umferð.
Þar höfum við það!