Nú er grilltíminn kominn, þótt sumir grilli vissulega allt árið. En það er samt alltaf notalegra að standa við grillið þegar hitatölur eru yfir frostmarki.
Góð sem aðalréttur eða forréttur í grillveisluna
Hér er ein besta pizzauppskrift sem hægt er að hugsa sér, grilluð humarpizza með hvítlaukssmjöri, parmesan og fleiri ómótstæðilegum hráefnum.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deildi þessari uppskrift með okkur en hún segist stundum grilla hana tvo daga í röð því hún sé svo ómótstæðileg. Hún er góð bæði sem forréttur eða aðalréttur og hana má útbúa og geyma í kæli þar til hún fer á grillið – sem er auðvitað frábært ef bjóða á upp á pizzuna í grillveislu.
Þetta getur ekki klikkað
Það sem þarf
(uppskriftin miðast við eina pizzu)
- álpappír
- PAM sprey
- salt og pipar
- tortilla kökur
- 25 g smjör
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 2 msk parmesan ostur, finrifinn
- 2 plómutómatar, hakkaðir og látið renna af þeim
- fersk basilika
- 60 g skelflettur humar
- 1 msk parmesan, fínrifinn
- 2 lúkur pizza ostur
- 30 g ferskur mozzarella í bitum
Aðferð
Rífið álpappír svo passi undir tortillaköku.
Spreyið álpappírinn með PAM og stráið vel af maldon salti og pipar yfir. Leggið tortillu yfir.
Bræðið smjör í potti og blandið saman við pressað hvítlauksrif.
Penslið hvítlaukssmjörinu yfir tortillabotninn og stráið 2 msk af fínrifnum parmesan yfir.
Hakkið plómutómata og látið leka af þeim í gegnum sigti.
Leggið hökkuðu tómatana yfir parmesan ostinn og setjið basiliku sem hefur verið skorin/klippt í ræmur yfir.
Skolið og þerrið humarinn og setjið hann yfir tómatana.
Stráið 1 msk af parmesan yfir, þar á eftir 2 lúkum af pizza osti og að lokum ferskum mozzarellabitum.
Grillið þar til osturinn er bráðnaður og botninn stökkur.