Hann er 65 ára gamall leikari í New York og hafði ekki farið í klippingu í meira en fimm ár.
Með sítt hár, mikið skegg og klæðnað sem einkennist af þykkum köflóttum skyrtum og allt of stórum gallabuxum hefur hlutverkunum fækkað í gegnum árin.
Hundrað ára gömul frænka Frankie, sem þykir vænt um frænda sinn, vildi sjá hann skegglausan og með stutt hár svo hún hvatti hann eindregið til að slá til og skella sér í yfirhalningu.
Breytingin á Frankie er meiriháttar og er hann eins og nýr maður.