Hún Virgina McLaurin er 106 ára og fékk ósk sína uppfyllta þegar hún komst í Hvíta húsið í síðustu viku að hitta forsetann og forsetafrúnna.
„Ég hélt ég myndi ekki lifa það að komast í Hvíta húsið, ég er að segja ykkur það, ég er svo hamingjusöm“, sagði Virgina sem tók dansspor og skríkti af gleði eins og táningur.
Við segjum eins og forsetafrúin, „ég vil vera eins og þú þegar ég verð stór“!