Það er alveg á hreinu að súkkulaðikaka er ekki alveg það sama og súkkulaðikaka.
En við höfum einmitt áður fjallað um leynivopnið að því að gera ómótstæðilega mjúka og góða súkkulaðiköku.
Galdurinn á bak við þessa ómótstæðilegu köku er majónes – og sitt sýnist nú hverjum um það. En við mælum samt endilega með því að þið prófið áður en þið dæmið.
Kakan rosalega vinsæl – og dásömuð af viðskiptavinum
Það er veitingahúsaeigandinn og kokkurinn Jasper J. Mirabile sem segir majónesið vera leyndarmálið á bak við hina ómótstæðilegu mjúku súkkulaðiköku. En Mirabile rekur ítalskan veitingastað sem fjölskyldan hefur rekið í tugi ára. Og þar er meðal annars boðið upp á hina dásömuðu og vinsælu súkkulaðiköku sem móðir hans var vön að baka fyrir veitingastaðinn.
Og hér er uppskriftin að þessari dásemd.
Það sem þarf
2 bollar hveiti
2/3 bolli kakó
1 ¼ tsk matarsódi
¼ tsk lyftiduft
3 egg
1 2/3 bolli sykur
1 tsk vanilludropar
1 bolli majónes
1 1/3 bolli vatn
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Smyrjið kringlótt kökuformin (23 cm) og stráið örlitlu hveiti í þau.
Blandið hveiti, kakó, matarsóda og lyftidufti saman í skál, og setjið til hliðar.
Setjið egg, sykur og vanilludropa í skál og hrærið saman á miklum hraða í 3 mínútur eða þar til það er orðið létt og loftkennt.
Blandið þá majónesinu saman við og hrærið varlega þar til það hefur blandast vel.
Bætið þá hveitiblöndunni saman við sem og vatninu. Setjið þurrefnin og vatnið til skiptis út í og hrærið varlega. Byrjið og endið á hveitiblöndunni.
Hellið deiginu í formin.
Bakið í 30 mínútur. Stingið í kökuna til að athuga hvort hún sé ekki örugglega tilbúin.
Leyfið kökunni síðan að kólna aðeins áður en hún er tekinu úr formunum og krem er sett á hana.
Jóna Ósk Pétursdóttir – kokteillinn@gmail.com