Eitt af því sem er alveg á hreinu í þessu lífi er að við lærum svo lengi sem við lifum. Lífið er fullt af óvæntum uppákomum og kemur okkur sífellt á óvart.
Engu að síður er ýmislegt sem gott er að vita fyrr en seinna í lífinu – því ákveðnir hlutir gera lífið bara betra.
Hér eru 12 hlutir sem gott er að vita fyrr en seinna
1. Lærðu eitthvað nýtt á hverjum degi
Við þurfum að þjálfa heilann til að halda virkni hans og skerpu. Að lesa, gera krossgátur, hlýða á aðra, læra nýtt tungumál, læra dans og þar fram eftir götunum er allt vel til þess fallið að þjálfa heilann.
2. Lærðu af mistökum þínum
Það er algjör óþarfi að gera sömu mistökin aftur og aftur… og jafnvel oft. Láttu þau mistök sem þú gerir vera þér lexía í átt að frekari þroska.
3. Ekki dvelja við fortíðina og horfa sífellt til baka
Að hugsa endalaust um fortíðina er ekki skynsamlegt. Notaðu hana fyrst og fremst í þeim tilgangi til að draga lærdóm af henni.
4. Ekki gera ekki neitt
Ef við sitjum bara og bíðum getum við ekki ætlast til þess að eitthvað gerist hjá okkur – það er bara þannig. Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér. Gerðu því eitthvað sjálf/ur.
5. Ekki kenna öðrum um
Það hefur ekkert upp á sig. Við berum sjálf ábyrgð á eigin lífi. En ekki heldur áfellast sjálfa/n þig – við erum öll mannleg og allir gera mistök.
6. Ekki kvarta stöðugt
Það er algjör tímasóun og hefur heldur ekkert upp á sig. Ef þú ert ekki sátt/ur gerðu þá eitthvað í málunum eða sættu þig við að þú færð engu breytt. Auk þess dregur kvart og kvein úr þér orku.
7. Eyddu tíma með þeim sem þú elskar
Þetta er eitt af því mikilvægasta í lífinu. Ekki láta tímann fljúga frá þér – vertu með þínum nánustu í núinu því þegar upp er staðið er lífið frekar stutt ferðalag.
8. Vertu þakklát/ur
Þakkaðu fyrir að fá að vera hér og nú – og sýndu öðrum þakklæti. Vertu þakklát/ur fyrir þína nánustu, fyrir heilsuna, fyrir góða vini, fyrir fallegan dag og svo framvegis.
9. Hreyfðu þig daglega
Heilbrigð sál í hraustum líkama, er nokkuð sem er rétt og satt. Hreyfingin er góð bæði fyrir líkamann sem sálina. Göngutúr er t.d. afar góður bæði fyrir líkamann og heilastarfsemina.
10. Ekki hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst
Hvað öðrum finnst um þig skiptir ekki nokkru máli. Á meðan þú veist að þú ert ekki að gera neitt rangt og ert samkvæm/ur sjálfum þér ættirðu ekki að láta álit annarra á þér hafa nein áhrif. Vertu þú sjálf/ur!
11. Vertu vingjarnleg/ur og góð/ur
Ekki sýna öðrum hroka og leiðindi. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Ekki samt láta aðra traðka á þér en ekki heldur þykjast vera betri en aðrir.
12. Ekki taka sjálfa/n þig of alvarlega
Það er algjör óþarfi að taka sjálfan sig of alvarlega – þótt þú viljir að aðrir taki þig alvarlega. Smá grín, gleði og barnaskapur gerir lífið bara skemmtilegra… og um leið auðveldara.