Eitthvað segir okkur að döðlur séu ein af þessum vanmetnu ávaxtategundum sem við vitum ekki nógu mikið um.
Staðreyndin er nefnilega sú að þessi litli brúni ávöxtur er stútfullur af vítamínum og steinefnum.
Stútfullar af góðum efnum
Mikilvæg steinefni eins og kalsíum, járn, fosfór, natríum, kalíum, magnesíum og sink er öll að finna í döðlum. Einnig vítamínin A og K, þíamín og fólínsýru. Þá veita döðlurnar orku og eru auk þess trefjaríkar.
Það er því augljóst að döðlur eru góðar fyrir okkur – en ekki er þó ráðlegt að borða mikið af þeim í einu, nema þú þurfir að þyngjast, því þær eru mjög hitaeiningaríkar.
En hér eru sex góðar ástæður fyrir því af hverju við ættum að borða döðlur
1. Þær eru góðar fyrir hjartað
Döðlur eru víst frábærar fyrir góða hjartaheilsu. Þær eru rík uppspretta pótassíum en sýnt þykir að það geti minnkað hættuna á hjartaáfalli og öðrum hjartatengdum kvillum. Að leggja döðlur í bleyti á kvöldin til að borða síðan kramdar morguninn eftir er talið hafa góð áhrif á hjartað.
Þá halda þær LDL-kólesteróli (vonda kólesterólinu) í skefjum – en mikilvægt er fyrir hjartað að halda því niðri. Að fá sér döðlur tvisvar í viku getur því víst bætt hjartaheilsu til mikilla muna.
2. Gegn harðlífi og hægðatregðu
Döðlur geta virkað sem náttúrulegt hægðalyf og eru oft flokkaðar sem slíkar. Þær eru ríkar af uppleysanlegum trefjum sem eru góðri meltingu nauðsynlegar. Fyrir hámarks árangur er ráðlagt að leggja þær í bleyti yfir nótt og borða um morguninn.
3. Við blóðleysi
Döðlur eru fullar af steinefnum sem eru mikilvæg fyrir marga ólíka þætti góðrar heilsu.
En auk þess eru þær stútfullar af járni sem gerir þær einstaklega góðar fyrir þá einstaklinga sem þjást af blóðleysi. Þeir sem eiga við þetta vandamál að stríða ættu því að skoða það að bæta döðlum inn í fæðuna.
4. Fyrir sterk og heilbrigð bein
Hið mikla magn steinefna í döðlum gerir þær afbragðsgóðar fyrir beinin. Þær hjálpa til við að styrkja þau og minnka líkur á beinþynningu.
Í döðlum má meðal annars finna snefilefnin selen, manganese, kopar og steinefnið magnesíum – en öll eru þessi efni nauðsynleg fyrir heilbrigði beinanna og þá ekki síst þegar fólk er farið að eldast.
5. Við truflun á eðlilegri þarmastarfsemi
Með því að gæta þess að hafa döðlur sem hluta af fæðunni getum við hjálpað þarmaflórunni – og um leið örvað vöxt svokallaðra góðra baktería í þörmunum. Döðlur innihalda ýmsar gagnlegar amínósýrur sem geta örvað meltingu fæðunnar og gert hana áhrifameiri. Sem þýðir einfaldlega betri vinnslu næringarefna úr fæðunni.
Í döðlum er einnig að finna níkótín sem er talið geta komið í veg fyrir ýmsar truflanir á þarmastarfseminni. Ekki hafa áhyggjur þótt í þeim sé níkótín því það má einnig finna í fleiri góðum fæðutegundum sem fólk leggur sér til munns á hverjum degi.
6. Fyrir betra kynlíf
Rannsóknir þykja sýna að döðlur séu góðar til að bæta kynferðislegt þol. Hátt hlutfall estradíól og flavonoid er víst það sem veldur því.
Viljir þú láta á þetta reyna er mælt með því að leggja einn bolla af döðlum í einn og hálfan bolla af mjólk yfir nótt. Taka síðan döðlurnar morguninn eftir og mauka þær í mjólkinni. Bæta svo við þetta einni matskeið af hunangi og einni matskeið af kardimommudufti. Og skella síðan þessum ástardrykk í sig.