Ég er ein af þeim sem á það til að vera alltof oft of sein – eða alla vega svona á síðustu stundu. Þetta er eitthvað sem hefur fylgt mér alla ævi og virðist vera ansi erfitt að hrista það af sér.
Og þótt ég hafi aðeins skánað í gegnum tíðina, þá virðist þetta samt vera eitthvað sem ég á voðalega erfitt með að eiga við.
Alveg hundfúlt
En það er ekki eins og ég ætli mér að vera sein. Auðvitað ekki!
Ég er svo virkilega og innilega að hamast við að vera á réttum tíma – eða svona oftast alla vega. Að sjálfsögðu finnst mér ekkert gaman að láta aðra bíða eftir mér. Mér finnst það alveg hundfúlt! En það virðist samt ansi oft enda þannig að einhver þarf að bíða eftir mér. Nú eða þá að ég kem hlaupandi alveg á síðustu stundu.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvað sé eiginlega málið og af hverju ég sé svona oft of sein og á síðustu stundu. Er það af því ég er svo mikill trassi? Nei, ég held ekki!
Ber ég kannski svona litla virðingu fyrir tíma annarra? Nei, alls ekki.
Eða er ég bara svona svakalega óskipulögð? Nei, það passar alls ekki.
Svo hvað er þá málið?
Skýringin er fundin – þetta segja vísindin
Þar sem mér þykir þetta miklu leiðinlegra en flestir halda þá gladdist ég mjög að sjá niðurstöður rannsóknar sem útskýrir hvers vegna sumir eru alltaf of seinir. Ó JÁ! Það er sko skýring á þessu – og ég verð nú bara að segja að ég er alveg sátt við hana.
Samkvæmt rannsókninni þá er ég víst bara svona rosalega bjartsýn. Ég læt sem sagt stjórnast af bjartsýninni og hún setur tímaskynið alveg úr skorðum. Dásamleg útskýring, ekki satt.
En til að útskýra þetta nánar svo allir þeir sem hafa sýnt mér ótrúlega biðlund í mörg, mörg ár, skilji um hvað þetta snýst. Það er víst þannig að þessir bjartsýnu einstaklingar sem alltaf eru seinir trúa því svo innilega að þeir nái að gera miklu meira á ákveðnum tíma en raunin er.
Hér ríkir sem sagt óeðlileg bjartsýni. Og þetta gerir þessa einstaklinga um leið óraunsæja og lélega í því að áætla og reikna út tíma.
Vissulega getur verið ansi slæmt að vera óraunsær en engu að síður þá vil ég trúa því að kostirnir séu fleiri en gallarnir við það að vera fram úr hófi bjartsýnn. Því sannað þykir að með bjartsýni aukist heilsufarslegir þættir til hins betra. Bjartsýni er talin draga úr stressi, minnka líkur á hjartasjúkdómum og styrkja ónæmiskerfið.
Og ekki má svo gleyma því að allar rannsóknir sýna að bjartsýni og hamingja geta lengt lífið. Þá skiptir hún líka miklu máli til þess að ná árangri í lífinu og til að auka afköst.
Hluti af persónuleikanum
Þessir seinu einstaklingar eru stundum sagðir vera B-manneskjur, þeir eru afslappaðri,áhyggjulausari og meira skapandi. Með öðrum orðum þá hefur þetta fólk víst ekki jafn miklar áhyggjur af því sem ekki skiptir máli heldur horfir á heildarmyndina og sér framtíðina ætíð fulla af tækifærum.
En skiljanlega fáum við, þessi sem erum alltaf of sein, skammir og gagnrýni. Og alltaf þykir manni það jafn leitt að vera of seinn. Ég get lofað því að við þessi seinu erum ekki löt eða ótillitssöm og við viljum engan móðga. Þetta er aðeins hluti af persónuleika okkar – og auðvitað er það leiðinlegt að það þurfi að bitna á öðrum.
En við höldum samt áfram að reyna.
Jóna Ósk Pétursdóttir – kokteillinn@gmail.com